8. júní 2010
Búið að setja fleiri flokkunarkassa, fara með börnin í ferðir til að safna rusli, þau eru með það á hreinu hvernig á að flokka ruslið. Búið er að fara í gegnum rafmagnsmál og vatnsnotkun með hluta af börnunum. Allt lífrænt fer núna í hænsnamat. Skoða heimasíðu umhverfisstofnunnar.
11. mars 2010
Talað var almennt um grænfánaverkefnið. Börnin komu nýjum foreldra inn í stöðuna hjá okkur. Rætt var um næstu skref og hvernig gengur. Erum á fullu að flokka og markvisst að reyna að fá börnin með okkur. Börnin eru bæði dugleg og áhugasöm. Erum komnar með taupoka fyrir föt sem þarf að senda heim.
Eftir fund í september
Foreldri sem sett var í nefnd er flutt svo búið er að fá annað foreldri. flokkunarmálin standa vel nema okkur vantar moltutunnu. Það eru bara iso vottanir. pappír merktur með þýska endurvinnslumerkinu "græna punktinum" (þýðir að þessar vörur eru endurvinnanlegar og búið að reikna endurvinnslugjald inn í verð vorunnar). Erum að reyna að passa að slökkva ljós þar sem enginn er.
11. september 2009
Fyrsti fundur í umhverfisnefnd. Skoðaðar voru myndir af Grænfánanum, Íslenska fánanum og hvað við gætum gert til að fá Grænfánan. Mikill áhugi var um stærð fánans og hvernig við myndum fá hann, hvort einhver kæmi með hann eða hann kæmi í pakka og hversu stór pakkinn væri. Rætt var um hvað hægt væri að gera í umhverfismálum og hvað við værum þegar að gera. Börnin vissu að við sendum matarafganganna í hænurnar og að við myndum safna fernum, pappa, plasti, ál og fleira í kassa sem er svo flokkað og sett í endurvinnslutunnuna. Skoðaður var venjulegur pappír og endurunninn pappír og var mikill áhugi á hvernig hægt væri að gera endurunnan pappír bláan og bleikan. Rætt var um hvort börnin myndu hjálpa til við flokkun heima og hvort væru ekki tvær tunnur. Börnin voru sammála með það að það væru bara mamma og pabbi sem myndu sjá um flokkun. Rætt var um kosti þess að nota endurvinnanlegan efnivið í listasmiðjuna. Foreldri sýndi mikinn áhuga og fékk að skoða það sem við vorum að gera og hvernig við værum að flokka. Næstu markmið er að vera dugleg við flokkun og endurvinslu. ganga vel um leikskólan og umhverfi hans. Nota efnivið úr náttúrunni til sköpunar. Að kynnast umhverfinu.
Árskógi
621 Dalvík
Sími: 466-1971
Leikskólastjóri: Gitta Ármannsdóttir
leikbaer@dalvikurbyggd.is