FJÖLMENNING

Undanfarin ár hafa 10-17% nemenda skólans verið af erlendum uppruna og tvítyngdir. Vegna þess og vegna þeirrar staðreyndar að fólki af erlendum uppruna hefur fjölgar ört í íslensku samfélagi á síðustu misserum vaknaði sú hugmynd að skoða nánar fjölmenningu og fjölmenningarlega kennsluhætti. Vorið 2006 var því sótt um fjárveitingu til bæjaryfirvalda til að vinna verkefnið.

Hvað er fjölmenning?

• Fjölmenning er menning hóps sem samanstendur af fólki með mismunandi menningarlegan bakgrunn, af ólíkum uppruna, ólíku þjóðerni, sem iðkar ólík trúarbrögð o.s.frv.

» Guðrún Pétursdóttir úr bókinni:
Allir geta eitthvað, enginn getur allt.

Mikilvægt er að hafa í huga að þegar rætt er um fjölmenningu er ekki eingöngu verið tala um ólíka upprunamenningu. Menningarlega einsleitur barnahópur er í raun fjölmenningarlegur. Hver einstaklingur á sína heimamenningu, á sér sínar sérstæðu venjur og hefðir. Sumir eru ættaðir úr sveit, aðrir úr borg. Enn aðrir eru upprunir að vestan og aðrir að austan. Fyrir sunnlending getur t.d. verið mjög skrítið að hlusta á tal fólks úr Svarfaðardal og heyra hvernig tal þeirra hljómar.

Þegar Aðalnámskrá leikskóla er skoðuð er greinilegt að í leikskólum ber kennurum að taka tillit til fjölbreytileika nemendahópsins hvort sem um er að ræða ólíkan uppruna, fötlun eða annað.

Hvað segir aðalnámskrá leikskóla?

• Markmið með uppeldi í leikskóla skal m.a. vera að:

- Stuðla að umburðarlyndi og víðsýni barna og jafna uppeldisaðstöðu þeirra í hvívetna.

... leggja grundvöll að því að börnin verði sjálfstæðir, hugsandi, virkir og ábyrgir þátttakendur í lýðræðisþjóðfélagi sem er í örri og sífelldri þróun.

• Auk þess segir:

– Stuðla skal að því að öll börn fái notið sín, óháð líkamlegu eða andlegu atgervi, uppruna, kynferði, menningu eða trú.

– Kennurum ber að:

• Örva börn til að sýna umhyggju og umburðarlyndi.

• Kenna börnum að bera virðingu fyrir öðru fólki óháð trúar- og lífsviðhorfum, kynþætti, menningu, uppruna eða atgervi.

Þegar námsvið leikskóla eru skoðuð kemur fram að mikilvægt er að kenna börnum:

– umburðarlyndi fyrir öðrum

– virðingu fyrir öðrum

Leikskólastarf skal taka tillit til að:

– börn búa við mismunandi uppeldisskilyrði

– börn koma úr ólíkum fjölskyldugerðum

– börn eru af ólíku bergi brotin

• Börn þurfa að læra að:

– hver þjóð hefur sín sérkenni og sína sérstæðu menningu sem ber að virða og meta.

• Leikskólum ber því skilda til að rækta með börnunum virðingu fyrir öðrum, hver sem uppruni þeirra er, lífsviðhorf, tunga eða trúarbrögð.

Aðalnámskrá leikskóla 1999:7,10,27,29

Hvað er fjölmenningarleg kennsla?

Fjölmenningarleg kennsla á við menningarlegan fjölbreytileika í samfélaginu almennt.

• Hugtakið felur í sér:

– Að vera sameiginlegur lærdómur fólks af mismunandi;

• þjóðerni

• menningarlegum og trúarlegum uppruna.

• og fólks með mismunandi hæfni og ólíka getu á hinum ýmsu sviðum.

Er fjölmenning eitthvað fyrir barnið mitt?

Fjölmenning á jafnt við um börn af erlendum sem íslenskum uppruna. Í því breytta þjóðfélagsmynstri sem við búum við í dag er mikilvægt að undirbúa börn undir það að búa í þessum nýja samfélagi. Þau börn sem eru að alast upp í dag eiga eftir að vera í skóla, stunda tómstundir, starfa við hliðina á fólki sem á sér annan uppruna en íslenskan. Allir foreldrar vilja að börn sín geti átt góð félagsleg samskipti við aðra í leik og í starfi. Því er jafn mikilvægt að kynna menningarlegri fjölbreytni fyrir menningarlega einsleitum nemendahópi og fyrir menningarlega fjölbreyttum nemendahópi.