Í leikskóla á að leggja áherslu á skapandi starf og leik barnsins. Ekki er um beina kennslu að ræða sem stefnir að ákveðinni fræðilegri þekkingu. Leikskólafræði eru fremur þroskamiðuð en fagmiðuð, með áherslu á leik barna sem náms- og þroskaleið og uppgötvunarnám.
Í leikskóla ber að hlúa að öllum þroskaþáttum, efla þá og örva samspil þeirra. Lífsleikni og námsgengi barnsins byggist á jafnvægi milli allra þroskaþátta.