Foreldraráð Leikbæjar

Foreldraráð er starfandi við leikskólann og heitir Foreldrarráð Leikbæjar. Fram til ársins 2009 hét félagið Foreldfélag Leikbæjar. Allir foreldrar/forráðamenn barna verða sjálfkrafa félagar um leið og barnið byrjar í leikskólanum. Foreldrafélagsgjald er innheimt með leikskólagjöldum. Aðalfundur foreldraráðs er haldinn í lok foreldrafundar að hausti ár hvert. Þar eru rædd málefni foreldrafélagsins og kosið í stjórn.

Lög foreldraráðs Leikbæjar

1.gr. Félagið heitir Foreldraráð Leikbæjar.

2.gr. Allir foreldrar/forráðamenn barna á Leikbæ eru í félaginu.

3.gr. Foreldraráð gefur umsagnir til leikskóla og nefndar um skólanámskrá og aðrar áætlanir er varða

. starfssemi leikskólans.

4.gr. Foreldraráð fylgist með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og

kynningu þeirra fyrir foreldrum.

5.gr. Foreldraráð hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar í leikskólastarfi með velferð

barnanna að leiðarljósi.

6.gr. Öllum félagsmönnum er frjálst að koma með tillögur til stjórnar um

fræðslufundi eða annað er varðar hina ýmsu þroskaþætti barna.

7. gr. Stjórn ráðsins er skipuð þremur foreldrum/forráðamönnum leikskólabarna.

8. gr. Til aðalfundar skal boða að hausti ár hvert. Á dagskrá hans skal vera:

a) skýrsla fráfarandi stjórnar um störf ráðsins síðastliðið starfsár,

b) lagabreytingar. Til þess að lagabreyting sé lögmæt þarf hreinn

meirihluti fundarmanna að vera samþykkur breytingunni,

c) kosning nýrrar stjórnar sbr. 7.gr.

9.gr. Félagsgjald er ákveðið af stjórn foreldraráðs frá ári til árs. Félagsgjald skal innheimt

með leikskólagjöldunum.

Foreldraráðið hefur aðal fjáröflun af piparköku- og húsasölu á aðventunni, einnig sér ráðið um kaffisölu á árlegri vorsýningu leikskólans. Fastir liðir í starfsemi félagsins eru að sjá um öskudaginn, Vorferðina á Leikbæ, litlu jólin auk leiksýninga sem í boði eru hverju sinni og vekja áhuga.

Einnig hefur starfsfólk Leikbæjar getað leitað eftir aðstoð foreldra vegna styttri ferða á vegum leikskólans. Eftir að foreldraráðið var stofnað hefur það gefið Leikbæ ýmislegt sem hefur komið sér vel í starfinu, t.d. ýmis leikföng, íþróttatæki, endurskinsvesti til að nota í gönguferðirnar, 2 þríhjól m/aukasæti, smásjá, sjónvarp, myndbandstæki, myndbandsupptökuvél og stafræna myndavél.