Fyrsta viðtal 

Þegar barn byrjar í leikskólanum fer það í ákveðinn hóp. Sá aðili sem er hópstjóri er aðlögunaraðili barnsins. Aðlögunaraðili og leikskólastjóri tekur viðtal við foreldra áður en aðlögun hefst eða í upphafi aðlögunar.

Í viðtalinu fær aðlögunaraðili upplýsingar frá foreldrum um barnið s.s.

Hefur barnið verið áður í leikskóla eða annarri gæslu

Hvað finnst barninu skemmtilegast að leika sér með

Samband barnsins við aðra fjölskyldumeðlimi, frændfólk, afa og ömmu

Daglegar venjur heima, borðhald, svefn, ummönnun, bleyjur o.s.frv

Heilsufar barnsins, barnasjúkdómar, ofnæmi, sjón, heyrn, aðrir sjúkdómar

Heimilisaðstæður, veikindi trúfélag, breytingar á lífi barnsins undanfarið.

Aðrar upplýsingar sem foreldrar vilja upplýsa um.

Foreldrar fá upplýsingar um starfssemi leikskólans s.s.

Markmið leikskólans

Þróunarverkefni

Daglegar venjur í leikskólanum

Þegar komið er með barnið og þegar það er sótt

Máltíðir

Samverustundir

Vinna í hópum

Leikurinn

Útivist

Foreldrafundir

Hvernig aðlögunartíminn verður

Klæðnað

Í viðtali við leikskólastjóra er gerður dvalarsamningu og foreldrar fá ýmsar hagnýtar upplýsingar s.s.

Greiðlsufyrirkomulag gjalda

Opnunartíma

Veikindi barna

Fjölda barna og starfsfólk