Í hópastarfi í sumar ætlum við að vera mikið úti og vinna þema vinnu í tengslum við það. Við ætlum að skoða tré og allskonar plöntur. Við förum í fuglaskoðunarferð og síðan verður mikið lagt upp úr málörvun. Börnin eru þegar byrjuð á að búa til kort af nánasta umhverfi leikskólans og ætlum við í gönguferðir og taka ljósmyndir. Börnin líma síðan ljósmyndirnar inn á kortið og merkja leiðina.
Markmiðið með hópastarfinu í sumar er að læra að þekkja inn á nánasta umhverfi og hvað það hefur upp á að bjóða. Sumarið verður notað til að efla samvinnu og samheldni innan hópsins og að áhugasvið og styrkur hvers og eins fái að njóta sín. Farið verður í málörvun í hverjum hópastarfstíma og í sumar ætlum við að vinna mikið með hlustun, hugtök og rím.
Þetta er bara lítið brot af því sem við ætlum að bralla saman í sumar og ætla ég að reyna að setja reglulega inn myndir af hópastarfinu.
Hjördís Jóna
Árskógi
621 Dalvík
Sími: 466-1971
Leikskólastjóri: Gitta Ármannsdóttir
leikbaer@dalvikurbyggd.is