Leikskólinn Leikbær er staðsettur í Árskógi, við hlið Árskógarskóla. Leikskólinn var stofnaður 19. september 1985 og var fyrst til húsa í kennaraíbúðinni í Árskógi. Þann 13. júní flutti leikskólinn í núverandi húsnæði sem var byggt árið 1973 sem skólastjórabústaður Árskógarskóla. Árið 2003 var húsnæðið aðlagað að starfsseminni. Heildarstærð húsnæðis er um 130 fm. og lóðar 983 fm. Leikskólinn er einnar deildar. Frá haustinu 2004 hefur börnum í 1-3. bekk grunnskólans staðið til boða skólavistun í leikskólanum. Leikskólinn rúmar 20 börn og eru þau á aldrinum 9 mánaða til 6 ára eða þar til grunnskólaganga hefst. Sérstaða Leikbæjar felst í útikennslu, leikskólalæsi, og stærðfræði. Verið er að innleiða uppeldi til ábyrgðar. Jafnframt er skólinn Grænfánaskóli og flaggaði Grænfánanum í fyrsta sinn snemma árs 2012. Öflugt samstarf er milli Leikbæjar og Árskógaskóla með heimsóknum á báða bóga og með samnýtingu húsnæðis.
Árskógi
621 Dalvík
Sími: 466-1971
Leikskólastjóri: Gitta Ármannsdóttir
leikbaer@dalvikurbyggd.is