Keyrt er inn á Hagaháls, eða á hæðina milli bæjanna Götu og Rauðavíkur. Þaðan er gengið upp á Hillurnar sunnan og ofan við Götu, þar sem kallast Vatnamýrar. Af Gráhjallahaus er útsýni gott bæði inn Eyjafjörð en ekki síður út fjörðinn, yfir Hrísey og norður í fjarðarmynnið sem er innrammað af Látraströndinni að austan og Ólafsfjarðarmúla að vestan. Þaðan er svo stefnan tekin í átt til Kötlufjalls, að svonefndur Kötluhól sem er annar meintur fornmannahaugur. Kötluhóll, er stór, náttúrulegur hóll sem ber þess engin merki að vera manngerður eða að í hann hafi verið grafið. Eftir að hafa vottað landsnámsmanninum Kötlu virðingu okkar, liggur leiðin í norður að meintum fornmannahaug, Hrærekshól í landi Kálfskinns.
Hóllinn er friðaður, enda segir sagan að þar hvíli norski fylkiskonungurinn, Hrærekur blindi, sem dó að Kálfsskinni, samkvæmt frásögn Heimskringlu.Þaðan er haldið niður Borgirnar í átt að Stærri-Árskógi þar sem göngunni líkur.
![]() |
![]() |
![]() |
Sími: 897 6076
Sími: 460 4908
Leiðsögumenn:
Kristján Eldjárn Hjartarson
Anna Dóra Hermannsdóttir
Sala fer fram á upphafsstað hverrar göngu.