Ferðatröll stóð fyrir Heljuhlaupi í nokkur skipti hér á fyrstu árum aldarinnar, í samstarfi við UMF Þorstein Svörfuð og fleiri. Nú er meiningin að endurvekja þessa skemmtilegu keppni og verður Heljuhlaupið fyrsti viðburður haustgönguviku Dalvíkurbyggðar.
Farið er með rútu frá Sundlauginni á Dalvík kl. 8.00 og keyrt allar götur inn að Heljará í Kolbeinsdal. Þar við hina gömlu fjárrétt hefst svo hlaupið kl. 10.00. Hlaupið er upp í Heljardal eftir ítuslóða og inn dalinn allar götur upp að Stóruvörðu á há-Heljardalsheiðinni. Ekkert er stoppað þar frekar en mönnum sýnist en haldið rakleitt niður Heljarbrekkurnar Svarfaðardalsmeginn, og áfram niður Neðri-Hnjóta með Hnjótafjallið á vinstri hönd og yfir brúna á Skallá þar sem hlaupið endar. Samtímis hlaupinu er gefinn kostur á að ganda þá sömu leið og hlaupin er. Þá er stoppað eins oft og þurfa þykir og leiðsögumaður er þar með í för og sér til að allir komist á leiðarenda.
Þeir sem ætla að taka þátt í þessum viðburði þurfa að tilkynna um þátttöku fyrir fimmtudagskvöldið 27. ágúst til ábyrðarmanns hlaupsins, Friðriks Arnarsonar í síma 466-1554 eða 849-0980. Hann gefur einnig nánari upplýsingar. Þeir sem ætla að notfæra sér rútuferðina vestur þurfa að borga 5.000 kr. auk þátttökugjaldsins sem er 2.500 kr. Þeir sem keypt hafa þátttökuarmbandið þurfa aðeins að borga rútugjaldið. Lágmarksfjöldi í þessari ferð er 15 manns.
![]() |
Sími: 897 6076
Sími: 460 4908
Leiðsögumenn:
Kristján Eldjárn Hjartarson
Anna Dóra Hermannsdóttir
Sala fer fram á upphafsstað hverrar göngu.