Gönguvikur í Eyjafirði

Gönguvika FFA: Giljaferðir

Fararstjórar: Frímann Guðmundsson/Konráð Gunnarsson Brottför frá skrifstofu Ferðafélag Akureyrar (FFA), Strandgötu 23, Akureyri, kl. 19.00. Stuttar tveggja til þriggja klukkustunda kvöldgöngur við flestra hæfi.

7.júní sunnudagur
Stóragil í Öxnadal

9.júní þriðjudagur
Syðragil í Eyjafirði

10.júní miðvikudagur
Reyká í Eyjafirði

11.júní fimmtudagur
Syðri-Tunguá í Hörgárdal

Gönguvika í Dalvíkurbyggð
26. júní - 5. júlí

Gönguvika í Eyjafirði

6.júlí mánudagur
Möðruvallafjall (Hörgur) Gengið upp Staðarskarð fyrir ofan Möðruvelli, upp í nær 1000 metra hæð, og síðan suður fjallið og niður við Fornhagaöxl og meðfram Ytra-Tungugili að Fornhaga. Um 10 kílómetrar, göngutími 4-5 tímar. Gönguferð á vegum ferðafélagsins Hörg. Fararstjóri Bjarni E. Guðleifsson. Lagt af stað frá Möðruvöllum 3 klukkan 10,00

7.júlí þriðjudagur
Ystuvíkurfjall Gengið frá bílastæðinu efst á Víkurskarði, um Gæsadal á fjallið. Komið niður við Miðvík þar sem gangan endar. Þetta er þægileg 2 - 3 klst. ganga við hæfi flestra. Fararstjóri: Roar Kvam. Brottför frá skrifstofu FFA kl. 19.00

8.júlí miðvikudagur
Hæsta fjall Eyjafjarðar “Kerling” (24x24) Gönguferð á vegum 24x24 hópsins. Gengið frá Finnastöðum, um 15 mín akstur frá Akureyri. Áætlaður göngutími 6-8 tímar í heild. Göngulengd um 5 km á toppinn hvor leið. Brottför frá Finnastöðum kl. 8.00

9.júlí fimmtudagur
Hlíðafjall-Mannshryggur Ekið að Skíðastöðum og gengið upp með skíðalyftunni eftir ruddri braut upp á fjallið. Þaðan er fagurt útsýni yfir Eyjafjörðinn og nágrennið. Þetta er 2 - 3 klst. ganga við hæfi flestra. Fararstjóri: Frímann Guðmundsson. Brottför frá skrifstofu FFA kl. 19.00

10.júlí föstudagur
Vaðlaheiði - Skólavarða Ekið að uppgöngunni í Veigastaðalandi og eftir merktri leið upp á heiðina að vörðunni. Af Vaðlaheiðinni er fagurt útsýni yfir Akureyri og Eyjafjörðinn. Þetta er 2 - 3 klst. ganga við hæfi flestra. Fararstjóri: Grétar Grímsson. Brottför frá skrifstofu FFA kl. 19.00

11.júlí laugardagur
Glerárdalur (24x24) Glerárdalshringurinn 24x24 er stór og umfangsmikill fjallgönguviðburður sem genginn er árlega í júlí. Tímasetningin er valin miðað við bestu aðstæður á svæðinu. Glerárdalur er stór dalur girtur háum fjöllum, þeim hæstu á Tröllaskaga, þar af eru 10 þeirra hærri en 1400 m., Kerling hæst um 1540 m. Verð 10.000 kr. Skráning þarf að fara fram fyrir 1. júlí. Nánari upplýsingar á heimasíðu 24x24.is

11.júlí laugardagur
Grímsey (FFA): Farin skemmtiferð til Grímseyjar. Eyjan skoðuð undir leiðsögn heimamanns. Haldið til baka sama kvöld. Fararstjóri: Konráð Gunnarsson. Verð: 12.500 / kr. 13.000. Innifalið: Fararstjórn, ferðakostnaður.

12.júlí sunnudagur
Meðfram Glerá (FFA): Gengið meðfram Glerá, frá Heimari-Hlífá, við réttina, til ósa. Þetta er frábær og áhugaverð gönguferð í okkar nánasta umhverfi þar sem vaxa sjaldséðar jurtir. Fararstjóri: Ingimar Eydal. Verð: kr. 1.000 / kr. 1.500. Brottför frá FFA kl. 10.00

12.júlí sunnudagur
Hús úr húsi (Minjasafnið): Hús úr húsi – byggingarlist Innbæjarins. Gengið frá Laxdalshúsi Hafnarstræti 11 kl 14.00 (Gangan tekur 2 tíma með viðkomu í nokkrum húsum) Ekkert þátttökugjald. Enginn aðgangseyrir þennan dag á Minjasafninu, Nonnahúsi eða Gamla bænum Laufási Fararstjóri: Hanna Rósa Sveinsdóttir, sérfræðingur á Minjasafninu

Gönguvika Hörgs – Giljaskoðun

Mæting við Þelamerkurskóla alla dagana. (1 skór)

4. ágúst mánudagur
Krossastaðagil og Fossárgil á Þelamörk. Mæting kl. 17.00.

5. ágúst miðvikudagur
Bægisárgil. Mæting kl. 17.00.

6. ágúst fimmtudagur
Gloppugil og Gilsgil í Öxnadal. Mæting kl. 17.00.

7. ágúst föstudagur
Syðra-Tungugil og Ytra-Tungugil (Fornhagagil) í Hörgárdal. Mæting kl. 17.00.

8. ágúst laugardagur
Kotárgil og Bólugil í Skagafirði. Mæting kl. 10.00.

9. ágúst sunnudagur
Grjótárgil og Myrkárgil í Hörgárdal. Mæting kl. 10.00.

Gönguvika í Dalvíkurbyggð
29. ágúst - 3. september