Nú í sumar eins og undanfarin ár, verður boðið upp á gönguviku í Dalvíkurbyggð, nánar tiltekið dagana 24. júní til 3. júlí 2011. Fyrirkomulag gönguvikunnar verður þannig háttað:
Föstudagur 24. júní
Kynning í Menningarhúsinu Bergi kl. 20:30.
Leiðsögumann verða með kynningu á gönguvikunni og segja frá þeim leiðum sem fyrirhugað er að ganga. Einnig munu þeir fara yfir hvernig búnað er gott að hafa með sér í slíkar gönguferðir.Hægt verður að kaupa armbönd sem gilda í allar ferðirnar eftir kynninguna.
Gamli Múlavegur, brottför kl. 23:00 frá plani Ólafsfjarðarmegin. ![]()
Vegna skemmda á vegi er ekki hægt að ganga upp á Plan efst í Múlanum Dalvíkurbyggðarmegin. Þess í stað verður Gamli Múlavegurinn genginn frá plani, rétt utan gangnamunnans Ólafsfjarðarmegin. Ólafsfjarðarvegur var lagður um Múlann og formlega opnaður 17. sept. 1966 en lagður af þegar Múlagöngin voru opnuð 1991. Múlavegurinn er nú skemmtileg gönguleið. Nokkur eyðibýli og fleiri sögulegar minjar eru í Múlanum, sumar allfrægar, því “hér mundi gengt í fjöllin”.
Gangan tekur u.þ.b. 2 til 3 tíma með 100 m hækkun. 1 skór
Laugardagurinn 25. júní
Gengið kringum Hnjótafjall, brottför kl. 10:00 ![]()
![]()
![]()
Farið frá Kotabrúnni neðan við Atlastaði í Svarfaðardal og gengið fram Neðri-Hnjóta að Kambagili, upp Möngubrekku og upp að Stóruvörðu efst á Heljardalsheiðinni. Þá er sveigt til vinstri með Vörðufjalli að fjallinu Deili, fyrir botn Deildardals og áfram eftir Hákömbum fyrir botn Unadals allt þar til botn Skallárdals blasir við. Skokkað niður Unadalsjökul Skallárdalsmegin og gengið niður Skallárdal að Atlastöðum.
Gangan tekur um það bil 8 til 9 tíma með 850 m hækkun. 3 skór
Sunnudagurinn 26 júní
Gengið að Steinboga og inn að Gljúfrárjökli, brottför kl. 10:00 ![]()
![]()
![]()
Lagt er upp frá Kóngstöðum á dráttarvél með vagni og keyrt eftir malartroðningi sem leið liggur í áttina að Stekkjarhúsi. Þegar komið er að góðu vaði á Skíðadalsá, beint fyrir neðan eyðibýlið Krosshól, er sveigt út af slóðinni og göngumenn selfluttir yfir Skíðadalsá. Hér hefst hin eiginlega ganga í túnfætinum á öðru eyðibýli austan Skíðadalsár, Holárkoti. Nú er gengið fram Holárafrétt með stefnu á Heiðinnamannafjall, því í öxl þess fjalls er einmitt þessi merkilega náttúrusmíð, Steinboginn. Þegar framar dregur hækkum við okkur upp í minni Heiðinnamannadals og förum yfir Heiðinnamannaá á snjóbrú. Þá er haldið á brattann upp hálsinn milli Heiðinnamannadals og Gljúfrárdals þar til komið er að Steinboganum. Þetta er berggangur sem gengur upp úr fjallinu og í honum steinbrú sem hægt er að ganga undir. Þegar við höfum dáðst nóg, höldum við áfram inn Gljúfrárdal og nú með stefnu á Gljúfrárjökul. Hlíðin er nokkuð brött en þó ekki ill yfirferðar enda lækkum við okkur jafnt og þétt inn að jöklinum. Við jökulsporðinn komum við okkur yfir Gljúfrána á snjóbrú og þá erum við skyndilega stödd í Litladal, því þessi dalur eins og svo margir aðrir dalir í Svarfaðardal heitir tveimur nöfnum sinn hvoru megin ár. Eftir stutt stopp er svo haldið niður Litladal yfir háls Almenningsfjalls og að göngubrú sem liggur yfir Skíðadalsá og þaðan rakleitt í Stekkjarhús.
Gangan tekur um 8 til 9 tíma með 450 m hækkun . 3 skór
Eyðibýlaganga, brottför kl. 13:00 ![]()
Gengið frá Kóngsstöðum að eyðibýlunum hljóðu í botni Skíðadals og margbrotið mannlíf liðinna alda rifjað upp. Hugað að náttúrufari, örnefnum, huldum vættum og lífi genginna kynslóða í dalnum fagra. Staldrað við, hlustað á bæjarlækinn og hugleitt á söng náttúrunnar.
Þrátt fyrir að um auðvelda göngu sé að ræða er betra að vera í góðum skóm þar sem sumstaðar er farið um mýrar.
Gangan tekur um 5 tíma, hækkun lítil sem engin. 1 skór
Kvöldvaka í Stekkjarhúsi kl. 18:00 að hætti gangnamanna, boðið verður uppá kraftmikla gúllassúpu og eldhitað brauð.
Mánudagur 27. júní
Reykjaheiði, brottför kl. 10:00 ![]()
![]()
Keyrt frá Sundlaug Dalvíkur að eyðibýlinu Reykjum sem stendur undir rótum Lágheiðarinnar í Ólafsfirði. Þaðan er gengið upp sunnan árinnar sem þar rennur og heitir Lambá og upp í dalverpi sem heitir Heiðardalur, sem er frekar stuttur dalur og gott að ganga. Síðustu brekkuna upp í Heiðarskarð er gengið á snjó. Skarðið er í um 850 m hæð yfir sjó. Þegar í skarðið er komið sér niður í Böggvisstaðadalinn. Auðvelt er að ganga úr skarðinu og upp á fjallið Rauðhyrnu norðan skarðsins og er rétt rúmlega 1000 m há. Þaðan sést vel út yfir Tröllaskagann utanverðan. Úr skarðinu er svo gengið niður í botn Böggvisstaðadals og niður hann allar götur niður á hálsinn og þá er gengið niður í gegnum skíðasvæði Dalvíkinga og niður í sundlaug, þar sem lagst er makindalega í heitan pott og látið líða úr sér.
Göngutími er 6 til 7 tímar og 800 m hækkun. 2 skór
Melrakkadalur Álfaganga, brottför kl. 16:00 ![]()
Lagt er upp frá bílastæði við Dalvíkurkirkju og farið yfir Brimnesá á göngubrú (veitustokki) og haldið upp með ánni sem leið liggur upp í minni Upsadals. Þarna er fallegt gil eða gljúfur sem áin hefur sorfið í tímans rás. Þegar þarna er komið er sveigt frá ánni til norðurs og stefna tekin á framhlaup eitt mikið og fagurskapað sem fallið hefur úr hlíð Bæjarfjallsins einhvertíman í fyrndinni. Framhlaup þetta nefnist Upsi og ofan þess hefur myndast heilmikil skál eða kvos sem heitir Melrakkadalur og þangað er ferðinni heitið. Eftir að þessir hulduheimar hafa verið grandskoðaðir og hlýtt hefur verið á huldusögur sem tengjast staðnum er haldið niður sem leið liggur norður úr kvosinni og niður með Upsanum að norðan og hringnum lokað þar sem bílarnir bíða.
Gangan tekur um 2 til 3 tíma með 100 m hækkun. 1 skór
Ekið að Sundlaug Dalvíkur þar sem hóparnir tveir mætast og fara saman í sund.
Þriðjudagur 28. júní
Farið á Kerlingu, brottför kl. 10:00 ![]()
![]()
![]()
![]()
Lagt er upp frá Melum í Svarfaðardal og gengið upp með Kerlingargili, upp í Kerlingardal og þaðan upp á öxl Melafjalls og áfram eftir egginni upp á sjálfa Kerlinguna sem gnæfir fyrir miðjum Svarfaðardal og skiptir honum í tvo dali, fram-Svarfaðardal og Skíðadal. Kerlingin og fremsti hluti hennar, Stóllinn, er sannkölluð drottning svarfdælskra fjalla. Af henni er frábært útsýni um svarfdælska byggð og yfir í nágrannabyggðir. Þegar búið að glöggva sig á helstu kennileitum og örnefnum er haldið af stað niður aftur, suður af toppnum og niður í Geldingadal sem er eiginlega fremur mikið gil en dalur, milli Kerlingar og Hamrahnjúks. Áfram er gengið í suður á sléttum grundum ofan við hamrabeltið allar götur þangað sem því sleppir beint fyrir ofan bæinn Þverá í Skíðadal. Þar er gengið niður að Þverá þar sem göngunni líkur.
Gangan tekur um það bil 8 til 9 tíma og 1100 m hækkun . 4 skór
Hillur Árskógsströnd, brottför kl. 20:00 ![]()
Keyrt að hreppamörkum Dalvíkurbyggðar og Arnaneshrepps, eða á hæðina milli bæjanna Fagraskógar og Rauðavíkur. Þaðan er gengið upp á Hillurnar sunnan og ofan við Rauðavík, og áfram í norður þangað sem kallast Vatnamýrar. Af Gráhjallahaus er útsýni gott bæði inn Eyjafjörð en ekki síður út fjörðinn, yfir Hrísey og norður í fjarðarminnið sem er innrammað af Látraströndinni að austan og Ólafsfjarðarmúla að vestan. Þaðan er svo stefnan tekin í átt til Kötlufjalls, að svonefndum Kötluhól sem er meintur fornmannahaugur. Eftir að hafa vottað landsnámsmanninum Kötlu virðingu okkar, liggur leiðin í norður að öðrum meintum fornmannahaug, Hrærekshól í landi Kálfskinns. Hóllinn er friðaður, enda segir sagan að þar hvíli norski fylkiskonungurinn, Hrærekur blindi sem dó að Kálfsskinni, samkvæmt frásögn Heimskringlu. Þaðan er haldið um Borgirnar í átt að Stærri-Árskógi þar sem göngunni líkur.
Gangan tekur um 3 til 4 tíma með 100 m hækkun . 1 skór
Miðvikudagur 29. júlí
Farið á Dýjafjallshnjúk, brottför kl. 10:00 ![]()
![]()
![]()
![]()
Gengið er frá Klængshóli í Skíðadal og haldið inn Skíðadal að ánni Holá sem rennur úr Klængshólsdal eða Holárdal, því þessi dalur eins og svo margir hér í sveit heitir tveimur nöfnum. Í Holánni er einn af okkar fegurstu fossum, Holárfoss, sem þrengir sig niður djúpt og tignarlegt gljúfur.
Nánari lýsing kemur inn síðar.
Gangan tekur um ca. 10 tíma með um 1200 m hækkun. 4 skór
Fimmtudagur 30.júní
Gengið á Rima(r), brottför kl. 10:00 ![]()
![]()
![]()
Farið upp frá bænum Hofi í Svarfaðardal, gengið upp með Hofsánni að Goðafossi. Áfram er haldið á brattann upp sunnan við Hofshólana, sem er heljarmilið og formfagurt framhlaup sem á upptök sín úr Hofsskál. Gengið er upp með Hofsskálinni sunnanverðri og áfran með stefnu á fjallsöxlina milli Messuhnjúks og Rima. Þegar þangað er komið er greiður gangur upp ávala öxlina upp að vörðunni efst á Rimum. Af Rimum er víðsýnt í allar áttir. Þaðan er einstakt útsýni yfir svarfdælska byggð, inn í botna Svarfaðardals og Skíðadals, út yfir Dalvík, út Eyjafjörð og allt til Grímseyjar. Gengin er svipuð leið til baka, allar götur heim að Hofi á nýjan leik.
Gangan tekur um 8 tíma með um 900 m hækkun. 3 skór
Gengið um Hamarinn, undir Uppsalahóla að Völlum. Brottför kl. 21:00 ![]()
Lagt verður upp frá gömlu malarnámunum norðan við Skáldalæk. Gengið þaðan með stefnu á hitaveitutankana við Hamar og áfram upp á Hamarinn. Þegar þangað er komið blasir við fagurt útsýni inn í Svarfaðardal og ekki síður út yfir Dalvík og út Eyjafjörð. Nú er gengið suður um Hamarsmýrar og stefnan tekin á Kringlumel skammt sunnan og ofan við minkabúið á Skollamel. Áfarm er haldið að Uppsalahólum, sem er myndarlegt framhlaup í Vallafjalli. Göngunni lýkur á hlaðinu á Völlum
Gangan tekur um 2 tíma með um 70 m hækkun. 1 skór
Föstudagur 1. júlí
Gengið á Múlakollu, brottför kl. 10:00. ![]()
![]()
Upphaf göngunnar er við Brimnesá skammt norðan Ólafsfjarðarbæjar. Gengið er upp lyngbrekkur með stefnu á svokallaða Gvendarskál ofarlega í hlíðinni og þegar þangað er komið er skálarbarmurinn þræddur í norður þar til komið er á hrygg beint undir kollunni. Af Múlakollu er útsýni stórkostlegt og sést vítt um fjöll og dali. Fyrir fótum okkar liggja Ólafsfjörður og Eyjafjörður; ef skyggni er gott má sjá reykina á Námaskarði liðast til himins. Sama leið er gengin til baka.
Gangan tekur um 6 tíma með 750 m hækkun. 2 skór
Strandganga á Árskógsströnd, brottför kl. 16:00 ![]()
Upphaf gönguferðar er frá hlaðinu á Hellu á Árskógsströnd og gönguleiðin er um Helluhöfða. Helluhöfðinn er lágur og breiður höfði, sem gengur í sjó framan. Ströndin framan í höfðanum er fjölbreytt, og þar eru nokkrar smávíkur og klettastapar, stærst Djúpavík norðan á höfðanum, en Fagurhöfði kallast fremsti hluti hans. Við komum við í Naustavík í Hellulandi. Í víkinni var, eins og nafnið gefur til kynna, naust en þar voru einnig sjóbúðir, beituhús (íshús) og aðrar byggingar sem tengjast sjósókn. Yngstu húsin á svæðinu eru með steinsteyptum veggjum en þar eru einnig torfhlaðnar tóftir, sumar hverjar nokkuð signar og fornlegar. Á þessum stað má því sjá framfarir í húsagerð sem tengist sjósókn og hafa þar varðveist skemmtilega blandaðar byggingar frá ýmsum tímum. Eftir að hafa skoðað þetta er stefnan tekin á Árskógssand þar sem við heilsum upp á bruggverksmiðjuna Kalda og fáum ef til vill að svala sárasta þorstanum eftir.
Gangan tekur um 2 tíma með lítilsháttar lækkun. Erfiðleikastig:1 skór
Laugardagur 2. júlí
Þorvaldsdalsganga / hlaup.
Þorvaldsdalsskokkið, elsta skipulagða óbyggðahlaup á Íslandi, var fyrst haldið árið 1994 og hefur farið fram árlega síðan. Nú er það haldið í sautjánda skipti. Hlaupið hefst við Fornhaga í Hörgárdal og lýkur við Stærri-Árskóg á Árskógsströnd. Vegalengdin hlaupsins er um 25 kílómetrar. Göngufólk og hlauparar sem reikna með að vera lengur en 4 tíma á leiðinni leggja af stað kl. 900 meðan hlaupið sjálft hefst kl. 1200. Þorvaldsdalur er opinn í báða enda, opnast suður í Hörgárdal og norður á Árskógsströnd. Allbratt er fyrsta spölinn upp frá Fornhaga og dalbotninn nær 500 m hæð eftir um 5 km, í svonefndri Kytru, en úr því hallar undan með þeim frávikum sem landslagið býður upp á.
Skráningargjald í hlaupið er 2.500 kr, en 3.000 kr ef skráð er á staðnum.
Forskráning fer fram á netinu á hlaup.is en einnig er hægt að hafa samband við skipuleggjendur á umse@bugardur.is varðandi greiðslu þátttökugjalda. Skráningu og greiðslu þátttökugjalda lýkur kl. 2000 þann 2. júlí.
Farið upp í Garnir og upp á Sólarfjall, brottför kl. 19:00 ![]()
![]()
![]()
Stefnt er að því að þessi ganga verði miðnætursólarganga og við verðum uppi á Sólarfjalli á miðnætti, böðuð miðnætursólinni. Upphaf ferðar er frá vatnstönkum hitaveitunnar á Hámundarstaðahálsi. Leiðin er stikuð upp í Garnir og við fylgjum þeim þangað. Þetta náttúrufyrirbrigði er mikið og merkilegt giljakerfi, sem kallast Garnir. Aðalgilið liggur upp fjallsöxlina nær samhliða Hálsdal og klýfur hana að endilöngu. Það er grafið að mestu í fast berg, en þó klettalaust. Frá gilinu liggur drag niður hálsinn og eftir því rennur Garnalækurinn. Þvert á þetta aðalgil ganga svo þrjú gil með nokkuð jöfnu millibili, það neðsta er þó fremur skarð en gil og loks gengur eitt gil úr aðalgilinu utantil, myndar S-beygju og kallast Lokugörn. Öll eru gilin mynduð af jaðarvatni ísaldarjöklanna, sem legið hafa í dölunum og kallast slík gildrög jaðarrásir á máli jarðfræðinnar.
Við göngum upp eftir þessum giljum og upp á hjalla ofan þeirra og áfran upp hálsinn framan í öxl Sólarfjalls eða Krossafjalls eins og það heitir öðru nafni. Þetta er þægileg ganga upp eggina og alla leið á toppinn. Þar blasir við okkur Eyjafjörðurinn í allri sinni dýrð, með perluna Hrísey fyrir fótum okkar.
Gangan tekur um það bil 7 til 8 tíma með 900 m hækkun . 3 skór
Sunnudagur 3. júlí
Friðlandinu Svardæla, fuglaskoðun og sögur úr fortíð. Brottför kl. 10:00 ![]()
Farið frá skiltaútskoti skammt sunnan Ásgarðs.
Böggvisstaðasandur, Flæðarnar við Dalvík, Hrísanes, Hrísahöfði, Hrísamelar, Hrísatjörn, Víðishólmi í Svarfaðardalsá, Hrafnsstaða- og Ytra-Holtsmýrar, Skáldalækjar- og Sökkumýrar (Skáldalækjareyja og Ingólfshöfði), Hánefsstaðareitur, Tjarnarmýrar og Tjarnartjörn.
Náttúruminjar þær sem taldar voru hér að framan mynda samfellt svæði í botni Svarfaðardals utanverðum, þ.e.a.s. votlendið beggja megin Svarfaðardalsár, frá bænum Jarðbrú til sjávar, og hefur það verið nefnt "Friðland Svarfdæla". Stærð svæðisins er talin vera um 540 hektarar. Friðunin er fyrst og fremst landslagsvernd og verndun gróðurs og dýralífs, en hefðbundnar nytjar eru leyfðar á svæðinu. Friðland Svarfdæla var fyrsta votlendisfriðlandið sem stofnað var hér á landi árið 1972. Þetta svæði er kjörlendi fyrir fjölmargar fuglategundir sem eiga hér varplönd sín.
Gengið er suður bakkana neðan vegar að Árgerðisbrúnni og áfram upp á Hrísahöfðann að útsýnisskífu sem þar stendur. Áfram er haldið yfir höfðann að Hrísatjörn og yfir nýja göngubrú á útrennsli tjarnarinnar. Enn er gengið meðfram Hrísatjörn norðanverðri að fuglaskoðunarhúsi sem þar var sett niður í fyrravor.
Ferðin tekur um 3 tíma, engin hækkun. 1 skór
| Kl. | Fyrri | Kl. | Seinni | |
| 24/06/2011 | 20:30 | Kynning í Bergi | 23:00 | Gamli Múlavegur |
| 25/06/2011 | 10:00 | Gengið kringum Hnjótafjall | ||
| 26/06/2011 | 10:00 | Steinbogi að Gljúfrárjökli | 13:00 | Eyðibýlaganga í Skíðadal |
| 27/06/2011 | 10:00 | Reykjaheiði | 16:00 | Melrakkadaluro, Álfaganga |
| 28/06/2011 | 10:00 | Kerlingu | 13:00 | Hillur Árskógsströnd |
| 29/06/2011 | 10:00 | Dýjafjallshnjúkur | ||
| 30/07/2009 | 10:00 | Rimar | 21:00 | Hamarinn |
| 01/07/2009 | 10:00 | Múlakolla | 16:00 | Strandganga |
| 02/07/2009 | Þorvaldsdalshlaup | 19:00 | Sólarfjall (Krossafjall) | |
| 03/07/2009 | 10:00 | Friðland Svarfdæla |
Skýringar við sumarferðir:
Léttar og stuttar dagleiðir (yfirleitt 4 – 6 klst.) ![]()
mest gengið á sléttlendi • léttur dagspoki • engar eða litlar ár • flestum fært.
Miðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.)![]()
![]()
oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár
• þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.
Nokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)![]()
![]()
![]()
oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi
• getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfun
Erfiðar og langar dagleiðir (jafnvel yfir 10 klst.) ![]()
![]()
![]()
![]()
gengið í fjalllendi með allt á bakinu • má búast við erfiðum ám
• aðeins fyrir fólk í mjög góðri þjálfun.
Athugið: Hér er einungis um viðmiðun að ræða. Einstakar ferðir geta fallið undir fleiri en einn flokk og ófyrirsjáanlegar breytingar á ytri aðstæðum, t.d. veðri, geta breytt því hversu erfið ferð reynist verða.
Styttri ferðir: 1.500.-
Lengri ferðir: 3.000.
Börn yngri en 12 ára fá frítt í allar ferðir.
Skráðir félagar í Ferðafélagi Svarfdæla fá 500 kr. afslátt af stökum ferðum