Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

  • Fjölmenningasetur
  • island.is
  • Facebook
  • Pistlar úr Dalvíkurbyggð

Melrakkadalur - Álfaganga

Leiðsögumaður: Magnús Magnússon

Lagt er upp frá bílastæði skammt utan og ofan við Dalvíkurkirkju kl. 16:00, farið yfir Brimnesá á göngubrú (veitustokki) og haldið upp með ánni sem leið liggur upp í mynni Upsadals. Þarna er fallegt gil eða gljúfur sem áin hefur sorfið í tímans rás. Þegar þarna er komið er sveigt frá ánni til norðurs og stefna tekin á framhlaup eitt mikið og fagurskapað sem fallið hefur úr hlíð Bæjarfjallsins einhvertíman í fyrndinni. Framhlaup þetta nefnist Upsi og ofan þess hefur myndast heilmikil skár eða kvos sem heitir Melrakkadalur og þangað er ferðinni heitið. Eftir að þessir hulduheimar hafa verið grandskoðaðir og hlítt hefur verið á huldusögur sem tengjast staðnum er haldið niður sem leið liggur norður úr kvosinni og niður með Upsanum að norðan og hringnum lokað þar sem bílarnir bíða. ( 2 til 3 tíma gangur og 100 m hækkun, 1 skór)
Keyrt að Sundlaug Dalvíkur þar sem hóparnir tveir mætast og fara saman í sund.

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Sorphirða
  • Fundargátt
  • Íbúðir til sölu
  • Mín Dalvíkurbyggð
  • Hús vikunnar
  • Sumarstörf

Viðburðadagatal

« maí 2013 »
m þ m f f l s
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31