Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

  • Fjölmenningasetur
  • island.is
  • Facebook
  • Pistlar úr Dalvíkurbyggð

Hillur Árskógsströnd

Leiðsögumaður: Anna Dóra Hermannsdóttir

Upphaf göngunnar er frá hæðinni milli Fagraskógar og Rauðavíkur eða á hreppamörkum Hörgárbyggðar og Dalvíkurbyggðar. Þaðan er gengið upp eftir upprekstrarvegi í svokallaðar Hillur og þaðan í norður að klettahól einum sem nefnist Gráhjallahaus. Af Gráhjallahaus er útsýni gott bæði inn Eyjafjörð en ekki síður út fjörðinn, yfir Hrísey og norður í fjarðarmynnið sem er innrammað af Látraströndinni að austan og Ólafsfjarðarmúla að vestan. Þaðan er svo stefnan tekin norður meðfram Kötlufjalli ofan Vatnamýrar, að svonefndum Kötluhól sem er meintur fornmannahaugur. Kötluhóll er stór, náttúrulegur hóll sem ber þess engin merki að vera manngerður eða að í hann hafi verið grafið. Eftir að hafa vottað landsnámsmanninum Kötlu virðingu okkar, liggur leiðin í norður að öðrum meintum fornmannahaug, Hrærekshól í landi Kálfskinns. Hóllinn er friðaður, enda segir sagan að þar hvíli norski fylkiskonungurinn, Hrærekur blindi sem dó að Kálfsskinni, samkvæmt frásögn Heimskringlu. Þaðan er haldið niður Borgirnar í átt að Stærri-Árskógi þar sem göngunni lýkur.
Gangan tekur um 3 til 4 tíma með 100 m hækkun. Erfiðleikastig: 1 skór.

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Fundargátt
  • Mín Dalvíkurbyggð
  • Hús vikunnar
  • Information

Viðburðadagatal

« júní 2013 »
m þ m f f l s
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30