Eyðibýlaganga

Gengið frá Kóngsstöðum kl. 13:00 að eyðibýlunum hljóðu í botni Skíðadals og margbrotið mannlíf liðinna alda rifjað upp.
Hugað að náttúrufari, örnefnum, huldum vættum og lífi genginna kynslóða í dalnum fagra.
Staldrað við, hlustað á bæjarlækinn og hugleitt á söng náttúrunnar.
Þrátt fyrir að um auðvelda göngu sé að ræða er betra að vera í góðum skóm þar sem sumstaðar er farið um mýrar.