Erfiðleikastig

Erfiðleikastig gönguvikunnar taka viðmið frá Ferðafélagi Íslands. Þau eru til viðmiðunar og til leiðbeiningar fyrir þátttakendur í gönguvikunni. Texti á ekki alltaf fullkomlega við göngur í gönguvikunni og skal skoðast miðað við að allar göngur eru dagsferðir, 2 klukkustundir - 9 klukkustundir hið mesta.

Léttar og stuttar dagleiðir (yfirleitt 4 – 6 klst.)
mest gengið á sléttlendi • léttur dagspoki • engar eða litlar ár • flestum fært.

Miðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.)
oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár
• þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.

Nokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)
oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi
• getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfun

Erfiðar og langar dagleiðir (jafnvel yfir 10 klst.)
gengið í fjalllendi með allt á bakinu • má búast við erfiðum ám
• aðeins fyrir fólk í mjög góðri þjálfun.

Athugið: Hér er einungis um viðmiðun að ræða. Einstakar ferðir geta fallið undir fleiri en einn flokk og ófyrirsjáanlegar breytingar á ytri aðstæðum, t.d. veðri, geta breytt því hversu erfið ferð reynist verða.