Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

  • Fjölmenningasetur
  • island.is
  • Facebook
  • Pistlar úr Dalvíkurbyggð

Gönguvika1 Nú er fyrstu gönguviku Dalvíkurbyggðar lokið með góðri þátttöku heimamanna og gesta. Góður rómur hefur verið gerður af þessu framtaki og er það nú í skoðun hvort það sé hægt að hafa þetta að árlegum viðburði. Að ári er stefnt á svipaðar dagsetningar eða 28. júní - 4. júlí 2009. Ábendingar um það sem betur mætti fara eru vel þegnar. Tímasetningar á göngum eru í athugun.
Myndir úr öllum ferðum eru hér 

Frétt um 1. ferð Vikið

Frétt um 2. ferð Nykurtjörn

Frétt um 3. ferð Skeiðsvatn

Frétt um 4. ferð Gloppuskál

Frétt um 5. ferð Steinboginn

Frétt um 6. ferð Hvarfshnjúkur

Frétt um 7. ferð Sólarfjall

Frétt um Þorvaldsdalsgönguna

Dagana 29. júní til 5. júlí 2008 mun Dalvíkurbyggð í samvinnu við Kristján Eldjárn Hjartarson á Tjörn standa fyrir gönguviku um fjöll og firnindi í Dalvíkurbyggð. Gengnar verða 7 gönguleiðir á sjö dögum þar sem Kristján Eldjárn veitir leiðsögn. Allar göngur hans nema ein hefjast klukkan 11:00 en sú síðasta 5. júlí hefst klukkan 19:00. Þorvaldsdalsskokkið fer fram 5. júlí og þá er boðið uppá göngu undir leiðsögn Bjarna Guðleifssonar. Gangan hefst klukkan níu við Fornhaga í Hörgárdal en boðið er uppá að skilja við bílana við Árskóg á Árskógsströnd og fá far þaðan að Fornahaga, mæting við Árskóg klukkan 08:00. Hér er því um að ræða 8 göngur á sjö dögum um óbyggðir Dalvíkurbyggðar.

Ekkert gjald er tekið fyrir leiðsögn.
Fólk er hvatt til að taka með sér nesti og eitthvað á grillið. Grill verður á staðnum eftir gönguferðir.
Frítt í Sundlaug Dalvíkur fyrir þátttakendur eftir gönguferðir.

Nánari leiðalýsingar eru hér neðar.

1. ferð 29. júní, gengið Vikið klukkan 11:00.
2. ferð 30 júní, gengið að Nykurtjörn klukkan 11:00.
3. ferð 1. júlí. gengið að Skeiðsvatni klukkan 11:00.
4. ferð 2. júlí, gengið upp í Gloppuskál klukkan 11:00.
5. ferð 3. júlí, gengið að Steinboga og inn að Gljúfrárjökli klukkan 11:00.
6. ferð 4. júlí, gengið á Hvarfshnjúk klukkan 11:00.
7. ferð 5. júlí, farið upp í Garnir og upp á Sólarfjall klukkan 19:00.
Fimmtánda Þorvaldsdalsskokkið verður þreytt 5. júlí 2008 klukkan 08:00


Föstudagskvöldið 27. júní kl. 20:30 í Safnaðarheimili Dalvíkurkirkju verður Kristján með kynningu á ýmsum gönguleiðum í sveitarfélaginu og fer jafnframt yfir þær leiðir sem fyrirhugað er að ganga í framhaldinu. Einnig mun hann fara yfir hvernig búnað væri gott að hafa með sér í slíkar gönguferðir. Gönguleiðirnar eru valdar með það í huga að flestir ættu að finna sér ferð við hæfi, og fólk getur valið að fara bara eina ferð upp í að fara þær allar.
Gönguvikan kort
Smellið á kort til að fá stærri útgáfu.

1. ferð 29. júní, gengið Vikið.
Gengið frá Sauðárkoti í Ólafsfjarðarmúla upp í Sauðdal sem er stuttur en ákaflega fallegur smádalur, girtur háum og tígurlegum hnjúkum allt um kring og sjálfan Kerahnjúk í öndvegi. Dalurinn hækkar jafnt og þétt inn í botninn og endar með snöggri brekku upp í sjálft Vikið, milli Sauðdals og Kalsárdals. Þegar upp í Vikið er komið blasir fjallahringur Svarfaðardals við yfir Hólshyrnuna og útsýni inn Eyjafjörð. Gengið er niður í Karlsárdal allar götur að Karslá. Í Karlsárdal er sérlega blómleg flóra villtra plantna.
Gangan er alls um 5 tímar.
Gönguvika6

2. ferð 30 júní, gengið að Nykurtjörn.
Nykurtjörn liggur í um 700 m hæð, beint upp af bænum Brekku í Svarfaðardal. Hægt er að fara margar ólíkar leiðir upp að henni, en við munum fara hina stikuðu leið sem hefst við bæinn Steindyr, sem er í um 10 km fjarlægð frá Dalvík, fram í Svarfaðardal vestanverðum. Gengið er upp gróðursælar hlíðar meðfram Þverá sem fellur um fallegt gil er ofar dregur.  Í gilinu er fallegur foss, Steindyrafoss, en undir hann er hægt að ganga nokkurn veginn þurrum fótum. Þegar komið er upp á hjalla nokkuð ofan við fossinn er sveigt til norðurs. Á leiðinni er tvo hjalla að fara. Þeim fyrri lýkur við svokölluð Bakkabjörg og er gengið undir þeim í norðurátt þar til komið er að stað þar sem gott er að komast upp á næsta hjalla. Eftir þeim hjalla er gengið þar til komið er að gili einu miklu, Grundargili, en í því rennur lækurinn sem á upptök sín í Nykurtjörn. Þegar hingað er komið blasa við klettadrangar norðan lækjar, en þeir nefnast Hrafnabjörg. Göngunni er fram haldið með gilinu sunnanverðu upp nokkuð brattan melhrygg. Þá er gengið um gróðurminna svæði upp að tjörninni sem kúrir undir Litlahnjúk og Digrahnjúk sem eru um og yfir 1100 m háir. 
Gangan er alls um 7 tímar.
Gönguvika2

3. ferð 1. júlí. gengið að Skeiðsvatni.
Vatnsdalur gengur suður úr Svarfaðardal framanverðum, milli bæjanna Kots og Skeiðs. Þetta er fallegur og grösugur dalur, sem ber nafn sitt af dálitlu stöðuvatn inni á dalnum en það heitir Skeiðsvatn. Í dalsmynninu er geysilegt framhlaup eða hólahrúgald, sem lokar honum utan frá séð. Mikil skál er í fjallsöxlinni austan dalsins í Skeiðsfjalli, og hefur meginhluti hlauphólanna komið úr henni. Segja má að framhlaupið hafi stíflað þar mynni dalsins og þar innan við hafi Skeiðsvatnið eða Vatnsdalsvatnið myndast. Frá Koti er stikuð leið upp að Skeiðsvatni. Sú leið er auðveld og fljótfarinn eða um 45 mín. gangur  upp að Skeiðsvatni. Ganga að Skeiðsvatni er skemmtileg og nokkuð þægileg gönguleið sem ætti að henta flestum, ungum sem öldnum.
Gangan er alls um 3 tímar.
Gönguvika4

4. ferð 2. júlí, gengið upp í Gloppuskál.
Ferðin hefst við brúna yfir Þverá í Skíðadal. Gengið er upp Kóngstaðarhlíðina sem er viði vaxin og áfram upp Kóngstaðahálsinn. Þegar komið er nokkuð hátt upp í hálsinn, er sveigt til hægri inn í Gloppuskálina og allar götur inn að Gloppuvatni, sem er ægifagurt fjallavatn, umgirt háu hamrastáli á ýmsa vegu. Eftir langa unaðsstund við vatnið er svo haldi heim á leið, sömu leið og við komum.
Gangan er alls um 5 tímar.
Gönguvika7

5. ferð 3. júlí, gengið að Steinboga og inn að Gljúfrárjökli.
Lagt er upp frá göngubrúnni yfir Holá nokkru framan við Klængshól og gengið fram Holárafrétt með stefnu á Heiðinnamannafjall, því í öxl þess fjalls er einmitt þessi merkilega náttúrusmíð, Steinboginn. Þegar framar dregur hækkum við okkur upp í minni Heiðinnamannadals og förum yfir Heiðinnamannaá á snjóbrú. Þá er haldið á brattann upp hálsinn milli Heiðinnamannadals og Gljúfrárdals þar til komið er að Steinboganum. Þetta er berggangur sem gengur upp úr fjallinu og í honum steinbrú sem hægt er að ganga undir. Þegar við höfum dáðst nóg, höldum við áfram inn Gljúfrárdal og nú með stefnu á Gljúfrárjökul. Hlíðin er nokkuð brött en þó ekki ill yfirferðar enda lækkum við okkur jafnt og þétt inn að jöklinum. Við jökulsporðinn komum við okkur yfir Gljúfrána á snjóbrú og þá erum við skyndilega stödd í Litladal, því þessi dalur eins og svo margir aðrir dalir í Svarfaðardal heitir tveimur nöfnum sinn hvoru megin ár. Eftir stutt stopp er svo haldir niður Litladal, yfir háls Almenningsfjalls og að göngubrú sem liggur yfir Skíðadalsá og þaðan rakleitt í Stekkjarhús.
Gangan er alls um 5 tímar.
Gönguvika1

6. ferð 4. júlí, gengið á Hvarfshnjúk.
Farið upp frá Hofi í Svarfaðardal, gengið upp með Hofsá upp að Goðafossi, áfram inn Hofsdal með fjallið Rimar á vinstri hönd. Jöfn og örugg hækkun allar götur inn í botn. Þegar þangað er komið er auðvelt að fara upp á Hvarfshnjúk, en þaðan er einstakt útsýni yfir Svarfdælska byggð, út yfir Dalvík, út Eyjafjörð og allt til Grímseyjar. Gengið er niður í Ytri-Sæludal, út hjallana ofan við Syðra-Hvarf og niður að sumarbústaðahverfi á Hvarfinu. (um 8 tíma gangur, og 900 m hækkun)

7. ferð 5. júlí, farið upp í Garnir og upp á Sólarfjall.
Stefnt er að því að þessi ganga verði miðnæturganga og hefst kl. 19:00, og að við verðum upp á Sólarfjalli á miðnætti, böðuð miðnætursólinni. Upphaf ferðar er frá minnismerki um séra Friðrik Friðriksson við bæinn Háls. Leiðin er stikuð upp í Garnir og við fylgjum þeim þangað. Þetta náttúrufyrirbrigði er mikið og merkilegt giljakerfi, sem kallast Garnir. Aðalgilið liggur upp fjallsöxlina, nær samhliða Hálsdal, og klýfur hana að endilöngu. Það er grafið að mestu í fast berg, en þó klettalaust. Frá gilinu liggur drag niður hálsinn, og eftir því rennur Garnalækurinn. Þvert á þetta aðalgil, ganga svo þrjú gil með nokkuð jöfnu millibili til, það neðsta er þó fremur skarð en gil, og loks gengur eitt gil úr aðalgilinu, utantil, myndar S-beygju og kallast Lokugörn. Öll eru gilin mynduð af jaðarvatni ísaldarjöklanna, sem legið hafa í dölunum, og kallast slík gildrög jaðarrásir á máli jarðfræðinnar.
Við göngum upp eftir þessum giljum og upp á hjalla ofan þeirra og áfran upp hálsinn framan í öxl Sólarfjalls eða Krossafjalls eins og það heitir öðru nafni. Þetta er þægileg ganga upp eggina og alla leið á toppinn. Þar blasir við okkur Eyjafjörðurinn í allri sinni dýrð, með perluna Hrísey fyrir fótum okkar.
Gangan er alls um 6 tímar.
Gönguvika5

Fimmtánda Þorvaldsdalsskokkið verður þreytt þann 5. júlí 2008
Þorvaldsdalsskokkið, elsta skipulagða óbyggðahlaup á Íslandi, fer fram 5. júlí 2008. Lagt er upp frá Fornhaga í Hörgárdal og markið er við Stærri-Árskóg á Árskógsströnd. Vegalengdin er um 25 kílómetrar og er bæði boðið uppá göngu undir leiðsögn Bjarna E. Guðleifssonar náttúrufræðings og hlaupakeppni en gangan mun hefjast kl. 9:00 og hlaupið kl. 12:00.
Rútuferð fyrir gönguna verður frá Árskógi að Fornhaga klukkan 08:00.
Gönguvika3

5. júlí fer fram óbyggðahlaup eftir endilöngum Þorvaldsdal í Eyjafirði. Skokk þetta var fyrst haldið árið 1994 og hefur farið fram árlega síðan. Þátttakendur hafa verið á milli 20 og 50. Þorvaldsdalur er opinn í báða enda, opnast suður í Hörgárdal og norður á Árskógsströnd. Skokkið hefst við Fornhaga í Hörgárdal (þjóðvegur 815), en Fornhagi er 90 m yfir sjávarmáli, og endamarkið er við Árskógsskóla, sem er um 60 m yfir sjávarmáli. Vegalengdin er um 25 kílómetrar. Allbratt er fyrsta spölinn upp frá Fornhaga og dalbotninn nær 500 m hæð eftir um 5 km, í svonefndri Kytru, en úr því hallar undan með þeim frávikum sem landslagið býður upp á. Skokkarar fylgja sennilega helst fjárgötum, en mega fara hvaða leið sem þeim sýnist þægilegust. Leiðin er ómerkt. Farið er um móa, mýrlendi og norðlenskt hraun (framhlaup). Menn mega búast við því að blotna í fætur við að fara yfir mýrar og læki. Þorvaldsdalsskokkið hefst við réttina sunnanvið Fornhaga og er hlaupið norður yfir brúna á ánni (Ytri-Tunguá) og síðan upp með gilinu og er áin höfð á vinstri hönd. Um 300 m ofan vegar er fjallsgirðing og er þar opið hlið sem menn fara gegnum. Síðan er fjárgötum og dalbotninum fylgt og skal gæta þess að hafa ána ætíð á vinstri hönd og fjallshlíðina á hægri hönd. Fyrst rennur áin á móti manni, en á vatnaskilum (í Kytrunni) hverfur hún en rennur síðan með hlaupastefnunni. Menn skulu gæta þess sérlega að fara ekki vestur yfir dalbotninn á vatnaskilunum sem eru í námunda við fyrstu drykkjarstöð, en þetta er helsti möguleikinn á því að villast. Fjórar drykkjarstöðvar eru á leiðinni og þar eru björgunarsveitarmenn til taks og einnig ekur jeppi mönnum yfir Hrafnagilsá, einu verulegu þverána sem er síðla á hlaupaleiðinni. Þaðan er skokkað eftir jeppavegi (um 5 km) að endamarki við Ársskógsskóla. Skokkið hefst kl. 12:00 við Fornhaga í Hörgárdal, en menn mæta við Árskógsskóla kl. 11:00 og geta skilið ökutæki og búnað eftir þar, en þátttakendum er ekið frá Árskógsskóla að rásmarkinu við Fornhaga. Þeir sem hyggjast ganga dalinn undir leiðsögn eða telja sig þurfa lengri tíma en fjórar klukkustundir til að skokka dalinn byrja kl. 9:00 frá Fornhaga og geta mætt við Árskógsskóla kl. 8:00 þaðan sem þeim verður ekið að rásmarkinu. Þorvaldsdalsskokkið er ætlað öllum, bæði konum og körlum, sem telja sig komast þessa leið hlaupandi, skokkandi eða gangandi.  Tímatöku verður hætt klukkan 16:00. Keppt er í aldursflokkum 16-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára, 60-69 ára og 70 ára og eldri. Allir fá verðlaunapening og þrír fyrstu karlar og konur hljóta verðlaun sem Afreksvörur ehf gefa. Árangur allra þátttakenda verður síðan birtur hér á síðunni og á hlaup.is. Forskráning er á hlaup.is og er þátttökugjaldið 2000 kr í forskráningu en einnig er hægt að skrá þátttöku að morgni 5. júlí gegn 2500 kr þátttökugjaldi. Sá sem hraðast hefur hlaupið var 2 tíma og 4 sekúndur og elsti þátttakandinn var 79 ára. Götuskokkarar, göngumenn og aðrir eru hvattir til að fara á sínum hraða um þennan fallega dal. Þetta skokk er gjörólíkt öllum götuhlaupunum sem nú eru í boði. Framkvæmdaaðilar Þorvaldsdalsskokksins eru: UMSE, Ungmennafélagið Reynir, Árskógsströnd og Ungmennafélagið Smárinn, Hörgárbyggð.

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Fundargátt
  • Mín Dalvíkurbyggð
  • Hús vikunnar
  • Information

Viðburðadagatal

« júní 2013 »
m þ m f f l s
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30