Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

  • Fjölmenningasetur
  • island.is
  • Facebook
  • Pistlar úr Dalvíkurbyggð

 Páskar 2012

Páskadagskrá í Dalvíkurbyggð 

Nú eru páskarnir að ganga í garð og margt skemmtilegt og spennandi að gerast í Dalvíkurbyggð sem vert er að kíkja á. Hérna fyrir neðan er yfirlit yfir það sem er að gerast og páskadagskrána í heild sinni hérna.

Svarfdælskur mars
Svarfdælskur mars er haldinn dagana 30. mars - 1. apríl.

Dagskrá:

Föstudagur 30. mars:
Kl. 20.30 Heimsmeistarmótið í Brús háð að Rimum í Svarfaðardal

Laugardagur 31. mars
Hvoll kl. 13:00 - Söguganga um Dalvík. Kristján Hjartarson segir frá byggingar - og íbúasögu gamalla húsa á Dalvík. Byggðasafnið er opið frá kl. 13:00-17:00.

Berg kl. 15:00 - Opnun sýningar og málþing um gömlu húsin á Dalvík

Rimar kl. 21:00 - Marsinn stiginn að Rimum. Harmónikkan dunar og Hallgrínum Hreinsson stjórnar marsinum.

Skíðasvæðið
 Skíðasvæðið á Dalvík verður opið alla páskadagana.
• Farnar verða troðaraferðir upp undir fjallsbrún á Böggsstaðafjalli ef veður og aðstæður leyfa. Auglýst sérstaklega á skíðasvæðinu páskadagana.
• Veitingasalan í Brekkuseli verður opin alla páskana á opnunartíma svæðisins.

Fimmtudagurinn 5. apríl – Skírdagur. Opnunartími: 10:00-17:00

Föstudagurinn 6. apríl – Föstudagurinn langi. Opnunartími: 10:00-17:00

Þetta er rétti dagurinn fyrir fjölskylduna til að bregða sér í fjallið og búa til sína eigin dagskrá með kakó í brúsa. Að sjálfsögðu munum við gera okkar besta til að tryggja gott skíðafæri og veður á þessum degi líkt og öðrum.

Laugardagurinn 7. apríl. Opnunartími: 10:00-17:00

Lopapeysudagur í Böggvistaðafjalli. Allir sem mæta í lopapeysu fá glaðning. Heiðrum íslensku sauðkindina og fyllum fjallið af mislitum lopapeysum.

Sunnudagurinn 8. apríl – Páskadagur. Opnunartími: 10:00-17:00
12.00: Páskaeggjamót fyrir börn fædd 2005 og yngri. Allir keppendur fá páskaegg að keppni lokinni. Nánar auglýst á www.skidalvik.is.
14.00: Kaffihlaðborð í Brekkuseli í umsjón Foreldrafélags yngri barna.

Mánudagurinn 9. apríl – annar í Páskum Opnunartími: 10:00-16:00
13.00: Firmakeppni Skíðafélags Dalvíkur.
Keppendur eru vinsamlegast beðnir að mæta kl. 12:00. Keppt verður í samhliða svigi með forgjöf og útsláttarfyrirkomulagi. Öllum heimil þátttaka, skráning á staðnum.

Frítt er í fjallið fyrir börn undir skólaaldri og ellilífeyrisþega. Nánari upplýsingar á skíðasvæðinu.

Sími:4661010. Upplýsingasími:8781606

Við Höfnina Opið alla páskadaga frá kl. 12:00 - 21:00 nema laugardagskvöldið 7. apríl en þá er uppselt í mat.
Miðvikudaginn 4. apríl verða tónleikar og ball með Megasi, Gylfa Ægis og Rúnari Þór
Skírdag, 5. apríl verður kósý kvöld
Föstudaginn langa, 6. apríl verður Dj Doddi mix frá miðnættir
Páskadag, 8. apríl er opið frá kl. 24:00

Berg menningarhús
Kvikmyndin Svartur á leik verður sýnd 4. apríl kl. 20:30 
Tónleikar verða laugardaginn 7. apríl. kl. 21:00
Nánari upplýsingar á www.bergmenningarhus.is

Byggðasafnið Hvoll

Skírdagur 16.00 - 18.00
Föstudagurinn langi 16.00 - 18.00
Laugardagur f. páska 14.00 - 17.00
Páskadagur 16.00 - 18.00
Annar í páskum LOKAÐ

Sundlaug Dalvíkur

Skírdagur 11:00-18:00
Föstudagurinn langi 11:00-18:00
Laugardagur 11:00-18:00
Páskadagur 11:00-18:00
Annar í páskum 11:00-18:00

Happdrætti og lukkumiðar alla dagana, dregið í happdrættinu kl. 16:00 á páskadag.

Hægt er að leigja tíma í íþróttahúsinu á daginn.

Friðlandi fuglanna
Pálmasunnudagur 1. apríl opið 14:00-17:00
Laugardagur 7. apríl 14:00-17:00
Sunnud 8. apríl - páskadagur 14:00-17:00

Húsabakki
Á Húsabakka er ZUMBA í boði frá klukkan 11-12 fimmtudag 5. apríl, föstudag 6. apríl og sunnudag 8. apríl.
Skráning á facebook á http://www.facebook.com/events/341732835872601/

Songkran Festival laugardaginn 7. apríl frá klukkan 15:00 - 18:00. Tælensk nýárshátíð. Matur og skemmtiatriði með tælenskum dans og söng.
Miðaverð kr 2000, allur ágóði fer til að styrkja fátæka í Tælandi. Miðapantanir hjá Noy í síma 847 1658.

Leikfélag Dalvíkur frumsýnir verkið Grjóthaldið kjafti eftir breska leikskáldið Michael Frayn, en þýðinguna gerði Gísli Rúnar Jónsson. Leikstjóri er Aðalsteinn Bergdal. Sýningvar verða:

Miðvikudaginn 4. apríl - frumsýning kl. 20:00
Fimmtudaginn 5. apríl - 2. sýning kl. 20:00
Laugardaginn 7. apríl - 3. sýning kl. 20:00
Mánudaginn 9. apríl - 4. sýning kl. 20:00

Miðapantanari eru í síma 898 9706 á milli kl. 19:00 og 21:00.

Kaffihúsið í Bergi menningarhúsi
Opnunartími 5.-9.apríl er frá kl. 14:00-18:00. 
Í boði eru léttir réttir, kaffi og kökur og ýmsar aðrar kræsingar

Gregor´s Pub 
Mánud. - fimmtud. frá kl. 18:00-23:00
Föstud. og laugard. frá kl. 19:00 - 03:00 (eins fyrir alla frídaga)
Sunnudagar frá kl. 16:00-21:00

Heitur matur í hádeginu þriðudaga og föstudaga frá kl. 11:45-13:00

Tomman heimsendingarþjónusta á Pizzum, Dalvík . Tel. 466 1559

Opnunartími:
Sunnudaga – fimmtudaga opið frá 18:00 – 22:00
Föstudaga og laugardaga opið frá 18:00 – 23:30

Verslunin Samkaup, Dalvík  Tel. 466 1202.
www.samkaup.is

Skírdagur, opið frá kl. 11:00-18:00
Föstudagurinn langi, lokað
Laugardagurinn 7. apríl, opið frá kl. 10:00-18:00
Páskadagur, lokað
Annar í páskum, opið frá kl. 113:00-17:00




ÁTVR, Dalvík  Tel. 466 3430.
www.vinbud.is

Opnunartími:
Mánudaga – fimmtudaga frá 11:00 – 18:00
Föstudaga frá 11:00 – 19:00


Upplýsingar um ferðaþjónustu 

Skíðasvæðið okkar í Böggvisstaðafjalli býður upp á frábæra aðstöðu jafnt fyrir brettafólk og þá sem kjósa hefðbundin skíði. Á svæðinu eru tvær lyftur, neðri lyftan er af gerðinni Leitner og er 700 metra löng. Beint í framhaldi af henni er lyfta af gerðinni Doppelmayer og er hún 500 metra löng, samtals 1.200 metra langar og fallhæðin er 322 metrar. Einn snjótroðari sinnir daglegri troðslu á svæðinu og er annar til taks á álagstímum. Ný lýsing er á svæðinu, um 1.200 metra löng brekka er lýst.Snjóframleiðsla er á neðri hluta skíðasvæðisins.  Skíðaleiga er á staðnum og eru skíði og skór frá barnastærðum upp í fullorðinsstærðir. Hægt er að fá skíðakennslu um helgar og er kennd 1 klst í senn gegn gjaldi. Gott göngusvæði er í nágrenni skíðasvæðisins og fjölmargar gönguleiðir út frá því. Gönguhringur er troðinn daglega ef aðstæður leyfa. Hringurinn er um 2 km langur og liggur um hólana umhverfis Brekkusel, sem er skáli félagsins, og niður að Sundlaug Dalvíkur sem er í um 500 metra fjarlægð frá skíðasvæðinu. Aðstaða fyrir brettafólk er góð, landslagið mjög fjölbreitt og stutt að fara fyrir þá sem vilja ganga á fjöll.

Fyrir þá sem ferðast í hópum er hægt að fá sérstaka þjónustu svo sem sveigjanleika með opnunartíma og fl. Einnig er hægt að gista í skíðaskálanum Brekkuseli sem er staðsettur á skíðasvæðinu.

Nánari upplýsingar um svæðið fást hjá starfsmönnum þess á opnunartíma í símum 466-1010 og 466-1005. Umsjónarmaður svæðisins er Sigtryggur Hilmarsson í síma 866 3344. Upplýsingasími svæðisins er 878 1606.

 


Byggðasafnið Hvoller fróðlegt og skemmtilegt safn fyrir unga sem aldna en ísbjörninn og stærsti maður í heimi vekja þar jafnan mikla athygli. Það er góð dagsferð frá t.d Akureyri að skella sér til Dalvíkur með hópa til að skoða safnið, fara á skíði og í sund eða bara að ganga um lítið fiskiþorp á norðurhjara veraldar! Safnið er hefbundið minjasafn með munum af flestir af heimilum á Dalvík, Svarfaðardal og nærliggjandi byggðum. Einnig er þar yfirgripsmikið náttúrugripasafn en í fuglaherbergi safnsins eru yfir 100 tegundir uppstoppaðra fugla. Auk þess er á safninu jarðskjálftasýning en sýningin byggir á minningum fólks sem upplifði skjálftann fyrir 70 árum. Hún byggir á textum og ljósmyndum og má líta á sýninguna sem innsetningu í rými. Tveir þjóðþekktir svarfdælingar eiga sínar stofur á safninu. Þar ber að nefna Jóhann Svarfdæling sem eitt sinn var hæsti maður heims og stofa Kristjáns Eldjárns forseta Íslands. Safnið er opið allt sumarið en yfir vetrartímann er aðeins opið fyrir hópa. Nánari upplýsingar www.dalvik.is/byggdasafn



Sundlaug Dalvíkur er vel búin laug og gott að slaka á í henni eftir langan dag í fjallinu. Sundlaugin er þekkt fyrir fallegan byggingarstíl og hið frábæra útsýni hvort sem er út pottum eða turni. Sundlaugin er afar vinsæl meðal ferðamanna sem njóta hvíldar og sólbaða á sumrin og þeirra sem heimsækja okkur og upplifa norðurljósin á meðan slappað er af í pottunum.
Hér má finna 12,5m x 25m sundlaug, heita potta, barna- og hvíldarlaug, vatnsrennibraut, svepp, eimbað og ljósalampa. Einnig má finna fyrirtaks heilsurækt í húsakynnum sundlaugar.

 

Fjallaskíðaferðir eru á nokkurs vafa sérgrein Bergmanna enda hefur Jökull Bergmann staðið að markvissri kynningu og markaðssetningu á þessari frábæru íþrótt hér á landi um árabil. Ekkert jafnast á við það að sameina góða fjallgöngu og frábært rennsli og eru Íslendingar nú í óða önn að gera sér grein fyrir því að hér á landi eru aðstæður til fjallaskíðamensku á heimsmælikvarða. Tröllaskaginn er miðpunktur þessarar frábæru tegundar ferðamennsku með öllum sínum fjöllum og miklu snjóþyngslum. Tímabilið er frá mars og fram í júní þegar dagar eru orðnir langir, veður betri og snjórinn fullkominn til skíðunnar. 

Það er engin tilviljun að á Tröllaskaga hafa verið teknar upp 4 skíðakvikmyndir og fjöldi greina birst um svæðið víðsvegar um heiminn. Þetta er einfaldlega vegna þess að Tröllaskaginn er fjallaskíðasvæði á heimsmælikvarða. Bergmenn bjóða uppá mislangar ferðir á þessu svæði sem þó allar eiga það sameiginlegt að vera gerðar út frá Klængshóli í Skíðadal þar sem þú munt njóta einstakrar gestrisni á milli þess sem þú skíðar mögnuðustu brekkur landsins.


Sportferðir er ferðaþjónustufyrirtæki, staðsett í Eyjafirði og sérhæfa sig í skipulagningu hvataferða og hópeflis fyrir fyrirtæki og einnig árshátíða- og skemmtiferða hverskonar fyrir einstaklinga, félög og fyrirtæki. Ferðirnar eru framkvæmdar um allt land og í samvinnu við marga aðra ferðaþjónustuaðila.

Önnur sérgrein Sportferða er skipulagning og framkvæmd viðburða ss. snjókrossmótaraðar og alþjóðlegs snjókrossmóts. Einnig koma Sportferðir að viðburðum eins og golfmótinu Arctic Open sem þjónustuaðili við gesti mótsins. Það eru einnig margir aðrir viðburðir ss. hestamót og strandveiðimót sem Sportferðir koma að með ýmsum hætti.

Sportferðir bjóða einnig uppá gistingu að Ytri-Vík á Árskógsströnd í frístundahúsum fyrir einstaklinga og hópa.

Hestamennska á miklu fylgi að fagna í Dalvíkurbyggð. Í Hringsholti er stærsta hesthús á Íslandi. Þar er hægt að fá leigða hesta og meðreiðarsveina í lengri eða skemmri hestaferðir eftir hentugleikum.  Í þessu langhýsi sem áður hýsti 4000 refi hafa hestamenn á Dalvík innréttað hesthús og hlöður. Í norðurenda hússins er stórt reiðgerði og sýningarhringur, en norðan við hesthúsið er skeiðvöllur, keppnis- og sýningaraðstaða Hestamannafélagsins Hrings.

Hestaleigan Tvistur við Dalvík bíður upp á hestaferðir með leiðsögumanni í faðmi fagurra fjalla frá Hringsholti.
Hestar við allra hæfi. Reiðkennsla einnig í boði innandyra í reiðhöll.

Verð:
Reiðtúr í 1 klst. 4.000 kr. á mann.
Reiðtúr í 90 mínútur 5.000 kr. á mann.
Reiðtúr í 2 klst. 7.000 kr. á mann.
Reiðtúr í 3 klst. 8.500 kr. á mann.

Gerum tilboð fyrir hópa.
Upplýsingar og pantanir í símum 466-1679, 6169629 og 861-9631 eða ebu@ismennt.is

Gerðir er út tveir hvalaskoðunarbátar í Dalvíkurbyggð, Níels Jónsson á Hauganesi og báturinn Draumur frá Arctic sea tours á Dalvík, og fara þeir í reglulegar hvalaskoðunarferðir yfir sumartímann. Sjaldnast  þarf að fara langt út á Eyjafjörðinn til að sjá hvali af ýmsum tegundum en helst eru það hnúfubakar, höfrungar, hnísur, hrefnur og háhyrningar sem gleðja augað. Gjarnan er rennt fyrir fisk í þessum ferðum. Þá njóta miðnætursólarferðir á vorin og fyrri hluta sumars alltaf mikilla vinsælda ferðafólks.  Dalvíkurbyggð er paradís sjóstangveiðimannsins. Eru hvalaskoðunarbátar sem og ýmsir aðrir bátar heimamanna nýttir í því skyni. Í Eyjafirðinum eru rómuð þorsk-og ýsumið enda eru hér oft haldin sjóstangaveiðimót.

 Níels Jónsson á Hauganesi

Siglir kl. 9:30 til 12:30 frá Hauganesi alla daga í júní, júlí og ágúst( Ath. á öðrum tímum er hægt að leigja bátinn í ferðir fyrir smærri sem stærri hópa. )

Siglt er á Níelsi Jónssyni EA-106, sem er nánast óbreyttur fiskibátur, 30 tonn að stærð, smíðaður á Akureyri úr eik árið 1973. Bátnum hefur verið mjög vel við haldið. Hann er rúmgóður og þægilegur og er stjórnað af atvinnu fiskimönnum sem hafa siglt með ferðamenn síðan 1989 á sumrin.

Í hefðbundinni ferð er farið og komið frá litlu fiskimannaþorpi, Hauganesi (um 30 km frá Akureyri). Um borð er boðið upp á rjúkandi sjóarakaffi og heimagert bakkelsi, einnig eru sjóveiðistangir um borð þannig að þeir sem hafa áhuga geta rennt fyrir fisk.

 Arctic sea tours á Dalvík

Arctic Sea Tours á Dalvík býður uppá daglegar ferðir í hvalaskoðun og sjóstöng yfir sumartímann. Náttúrufegurð á Eyjafirði er einstök og í ferðunum er gjarnan siglt í kring um Hrísey, sannkallaða perlu Eyjafjarðar. Helstu hvalategundir sem sjást í Eyjafirði eru hnúfubakar, hnísur, hrefnur, höfrungar og steypireyðar, stærsta spendýr jarðar.

Fastar ferðir eru daglega kl. 9:00, 13:30 og 19:00 og tekur hver ferð 3 - 3 1/2 klst.
(frá 15. júní - 15. júlí er farin miðnæturferð kl. 23:00).


Bókanir í síma: 771-7600
www.ArcticSeaTours.is 

Fyrirtækið Artex ehf starfrækirLitboltagarð og LaserTag.

Á litboltasvæðinu sem staðsett er við Hádegishól í landi Krossa geta allt að 14 manns spilað í einu. Notaðir eru Tippmann Custom Act merkjarar. 18 ára aldurstakmark er í litbolta en heimilt er þó unglingum 15-18 ára að spila en þau þurfa þá að hafa til þess skriflegt leyfi foreldra sinna.

Lasertag er hægt að spila hvar sem er en undanfarið höfum við fengið leyfi hjá Dalvíkurbyggð til að spila í Brúarhvammsreit við Þorvaldsdalsána. Hægt er að taka á móti allt að 35 manns í einu í leiki sem settir eru upp samkvæmt óskum hverju sinni. Drægni lasertagbyssana er talsverð, eða um 150 metrar. Þessi búnaður hentar því bæði til leiks innan- og utandyra. Spilarar setja á sig ennisband sem tengt er byssunni og reyna síðan að hitta andstæðinginn. Þrátt fyrir nafnið þá er ekki um lasergeisla að ræða. Laser tag er búnaður sem sendir infrarautt ljós úr einu tæki í annað, sama kerfi og notað er í fjarstýringu á sjónvarp. Þetta er því algjörlega hættulaust og enginn sársauki því fylgjandi að vera hittur. Ekkert aldurstakmark er í lasertag.

Friðland fuglanna - Sýning!
Falleg, fróðleg og frumleg sýning fyrir fuglafræðinga á öllum aldri.
Á Húsabakka í Svarfaðardal er sýningin Friðland fuglanna. Hún fjallar um fugla í nátturu og menningu Íslands með nýstárlegum hætti. Sýningin er ekki síst sett upp með þarfir barna í huga en hæfir þó ekki síður fullorðnum. Þar haldast í hendur leikur og nám. Margir sýningarmunir eru snertanlegir og þar má gera einfaldar tilraunir. Í framsetningu sýningarmuna er vísvitandi sneitt hjá hinni vísindalegu flokkurnarfræði og þeim hátíðleika sem oft einkennir náttúrugripasýningar og söfn. Þar er bæði að finna vísindi, hjátrú og hindurvitni um íslenska fugla og ýmislegt er þar sem kemur á óvart. Það má með sanni segja að FRIÐLAND FUGLANNA sé sýning þar sem fuglarnir koma loksins út úr skápnum.

Frá Húsabakka og Dalvík liggja fallegar gönguleiðir um Friðland Svarfdæla með upplýsingaskiltum og fuglaskoðunarstöðum.
Opið er yfir sumartímann 12-17 og á vetrum eftir samkomulagi. Pöntunartími hópa er 4661551 eða 8618884


Gisting

Húsabakki, Tel. 862 2109
husabakki@husabakki.is   www.husabakki.is

Velkomin á Húsabakka í faðm fjalla og friðlands
Við bjóðum fjölbreytta og hagkvæma gistiaðstöðu úti og inni fyrir einstaklinga, fjölskyldur og hópa.Inni er í boði fjölbreytt gistiaðstaða fyrir 62 sem skiptast á 18 herbergi í mismunandi verðflokkum. Svefnpokapláss í 3-4 manna herbergjum eða á 18 manna svefnsal. Stórt og rúmgott fjölskylduherbergi. Húsabakki er sérlega vel staðsettur fyrir útivistar- og gönguhópa á Tröllaskaga hvað varðar nálægðina við hinar fjölmörgu og fjölbreyttu gönguleiðir og möguleika Tröllaskagans allt árið um kring. Friðland Svarfdæla liggur upp að Húsabakka með gönguleiðum, fræðslustígum og aðstöðu til fuglaskoðunar. Góð aðstaða er fyrir börn á öllum aldri, íþróttavöllur, leiksvæði, gönguleiðir, útieldhús með bálstæði í gróðurreit staðarins. Í næsta nágrenni er úrval af annarri afþreyingu eins og golf, sund, bátaferðir, gönguferðir með leiðsögn, hestaferðir og margt fleira. Við leggjum áherslu á notalegt andrúmsloft og persónulega þjónustu við gesti.

Syðri- Hagi, Tel. 466 1961/ 855 1861
sydrihagi@hotmail.com
Syðri Hagi býður uppá gistingu í heilsárshúsi á Árskógsströnd. Syðri Hagi er um 15 km frá Dalvík og um 30 km frá Akureyri. Í húsinu er svefnaðstaða fyrir 4 en hægt er að auka aðstöðuna í 8 með dýnum á gólfi. Syðri Hagi stendur við Eyjafjörð og er örstutt í fjöru til að veiða eða bregða sér á sjó. Eigendur Syðri Haga eru Úlla May Rögnvaldsson and Ármann Rögnvaldsson.



Ytri-vík / Kálfskinn Tel. 899 8000
sporttours@sporttours, www.sporttours.is 
Ytri-Vík Gamla húsið er steinhús á þremur hæðum sem byggt var 1929 og var þar stundaður búskapur bæði til sjós og lands til langs tíma en eftir að allur búskapur var lagður af, hófst þar ferðaþjónusta árið 1983 og síðan þá hefur húsið verið í stöðugri endurbyggingu. Í húsinu eru 7 svefnherbergi tveggja- og þriggjamanna og rúmar húsið 16 manns í uppbúin rúm. Í húsinu er fullbúið eldhús og borðstofa sem rúmar 25 manns og einnig lítil setustofa. Í kjallara hússins er gufubað og búningsaðstaða fyrir gesti og stór heitur pottur fyrir utan.
Frístundahúsin / Sumarhúsin
Bakki, Brekka og Hlíð (6-8 manna) eru hvert fyrir sig 50 fm. sumarhús með gistirými fyrir sex manns í rúmum. Tvö herbergi eru með tvíbreiðu rúmi og einbreiðri koju fyrir ofan, einnig lítill skápur og náttborð. Í stofu er leður sófasett, sjónvarp, video og útvarp.. Svefnloft sem rúmar allt að sex manns á dýnum. Í húsunum er allt það nauðsynlegasta í eldhúsi ss. hellur, ísskápur, örbylgjuofn, kaffikanna, ýmiss smá rafmagnstæki, borðbúnaður og flest öll önnur áhöld sem til þarf. Við húsin er stór verönd sem er yfirbyggð að hluta, þar er kolagrill, garðhúsgögn og að sjálfsögðu heitur pottur.
Gil og Sel (5 manna) eru tvö 37 fm. sumarhús með gistirými fyrir fimm. Eitt herbergi er með tveim 90 cm rúmum og einbreiðri koju, tvíbreiðum svefnsófa í stofu sem einnig er eldhús og borðstofa. Í húsunum er allt það nauðsynlegasta í eldhúsi ss. hellur, ísskápur, örbylgjuofn, kaffikanna, ýmiss smá rafmagnstæki, borðbúnaður og flest öll önnur áhöld sem til þarf, einnig er í húsunum sjónvarp, video og útvarp. Lítil yfirbyggð verönd er við enda húsana með heitum potti, kolagrilli, borði og stólum.
Snúður og Snælda (4 manna) eru tvö 27 fm. sumarhús með gistirými fyrir fjóra. Eitt herbergi er með tveim 90 cm rúmum og tvíbreiðum svefnsófa í stofu sem einnig er eldhús og borðstofa. Í húsunum er allt það nauðsynlegasta í eldhúsi ss. hellur, ísskápur, örbylgjuofn, kaffikanna, ýmiss smá rafmagnstæki, borðbúnaður og flest öll önnur áhöld sem til þarf, einnig er í húsunum sjónvarp, video og útvarp. Lítil yfirbyggð verönd er við enda húsana með heitum potti, kolagrilli, borði og stólum.
Í húsinum öllum eru sængur og koddar en rúmföt, handklæði, barnastólar og barnarúm fást gegn aukagjaldi.
Allar frekari upplýsingar eru á www.sporttours.is  



Fosshótel, Dalvík,  Tel. 466 3395 / 562 4000
bokun@fosshotel.is, dalvik@fiosshotel.is  , www.fosshotel.is  
Fosshótel Dalvík (fyrrum Hótel Sóley) er nýtt og þægilegt ferðamannahótel á góðum stað á Dalvík. Á hótelinu eru 25 herbergi með sturtu/salerni, sjónvarpi, síma, þráðlausri internet tengingu og útsýni yfir nálæg fjöll og firði. Auk þess býður hótelið upp á 7 herbergi með sameiginlegri sturtu- og/salernis aðstöðu auk sameiginlegs eldhúss sem að kemur sér vel fyrir svefnpokagistingar og þá sem vilja ferðast ódýrt. Móttakan er bæði nýtískuleg og notaleg, þar er að finna sjónvarpshorn, bar og internet aðstöðu. Stórt morgunverðarrými er á hótelinu, sem einnig er hægt að nota sem sal fyrir hópa og ráðstefnur. Bakarí og veitingastaður eru á Dalvík og einnig er þar að finna aðra staði sem bjóða uppá fljótlega rétti. Fosshótel Dalvík leigir út fjallahjól og býður upp á ókeypis bílastæði.





GistihúsiðSkeiði Svarfaðardal, Tel. 466 1636
md@thule-tours.com, www.thule-tours.com
Íbúðarhúsið var byggt 1935, eftir að skriða féll á eldri bæinn og eyðilagði hann. Við endurbyggðum húsið 1999. Allt var endurnýjað nema burðarveggir. 
Í boði er gisting í stúdíó-íbúð með tveimur tveggja manna herbergjum og stofu með svefnaðstöðu. Gistirými fyrir allt að 8 manns.
Einnig er í boði gisting í "fjósinu" þar er eitt tveggja manna herbergi og svefnkoju-herbergi. Gistirými fyrir allt að 20 manns.
Fólk getur fengið að tjalda á túninu með frábæru útsýni, aðgang að eldhúsi og baðherbergi.




Dæli í Skíðadal, Tel. 466 1658
daeli@simnet.iswww.internet.is/daeli
Í Dæli er boðið uppá gistingu í uppgerðu 100m2 fjárhúsi sem staðsett er á Másstöðum í Skíðadal, sem er í 18 km fjarlægð frá Dalvík. Húsið er með öllum búnaði og möguleiki á gistingu fyrir 5 - 8 manns í rúmum. Þá getur fólk fengið að tjalda og gista í húsbílum á svæðinu í samráði við eigendur.

Vegamót á Dalvík, Tel. 865 8391
vegamot@vegamot.netwww.vegamot.net 

Gamli bærinn á Vegamótum:
Við bjóðum gistingu í litlu fallegu húsi sem er byggt árið 1914 en hefur verið endurbyggt frá grunni í upprunalegum stíl. Það stendur bak við íbúðarhúsið á Vegamótum við hliðina á stórum og fallegum blóma- og trjágarði um 200 metra frá Sundlaug Dalvíkur. Húsið skiptist í stofu, eldhús og baðherbergi með sturtu og svefnloft. Í stofunni er góður svefnsófi þar sem tveir fullorðnir geta sofið en einnig er pláss fyrir börn á dýnum. Á svefnloftinu geta allt að 4 sofið á dýnum. Í eldhúsinu er eldavél og ísskápur ásamt flestum venjulegum tækjum og eldhúsáhöldum. Í stofu er sjónvarp og DVD spilari. Gestir geta einnig tengst internetinu í gegn um ljósleiðara og á þráðlausu neti. Garðurinn okkar er auðvitað frjáls til afnota fyrir gesti okkar. Hann er stór og fallegur og fullur af trjám og blómum. Í garðinum er aðgangur að heitum potti. Sunnan við garðinn er opið svæði þar sem er upplagt að fara í leiki, sparka bolta eða hoppa á trampólíni yngstu heimasætunnar!

Smáhýsin á Vegamótum:
Á Vegamótum eru einnig þrjú smáhýsi sem eru 15 fermetrar hvert. Hvert hús er eitt rými + snyrting og rúmar 4 svefnpláss á tvíbreiðu rúmi og svefnsófa. Einföld eldunaraðstaða, ekki sturta en við bjóðum í sund! Aðgangur að heitum potti.

Gimli:
Gimli er stórt hús í miðjum bænum á Dalvík með 8 herbergjum, sameiginlegum snyrtingum/sturtum og eldhúsaðstöðu, þráðlaust internet. Hægt að leigja hvert herbergi fyrir sig, aðra hæðina eða allt húsið eftir því hvað hentar best. Frábær kostur fyrir fjölskyldur sem vilja ferðast og dvelja saman. Heimilisleg og hugguleg aðstaða.

Frekari upplýsingar á www.vegamot.net eða með því að senda póst á vegamot@vegamot.net . Einnig er hægt að hringja í síma 466-1050 eða 865-8391.
Í lífsstílsblaðinu Í boði náttúrunnar - Vetur er að finna grein um gamla bæinn á Vegamótum. Erum einnig á facebook - Vegamót, gisting á Dalvík.
_______________________________
Vegamót gisting, Dalvík
620 Dalvík
Ísland
Sími: 865-8391
Heimasíða: www.vegamot.net
-------------------------------
Vegamót accommodation Dalvík
620 Dalvík
Iceland
Phone +354-865-8391
Web page: www.vegamot.net
-------------------------------

Tjaldsvæði í Dalvíkurbyggð í umsjón sveitarfélagsins


Tjaldsvæði Dalvíkur er í umsjá starfsfólks íþróttamiðstöðvar. Tjaldsvæðið er staðsett sunnan Dalvíkurskóla við hlið íþróttavalla og neðan íþróttamiðstöðvar/sundlaugar. Á tjaldsvæðinu eru snyrtingar og þvottaaðstaða með heitu og köldu vatni og sturtur. Fyrir húsbíla er losunarbúnaður fyrir skólp og tengi fyrir rafmagn. Heimilt er að aka tjöldum, vögnum og öðrum búnaði inn á tjaldsvæðið en við biðjum gesti að takmarka umferð bíla eins og mögulegt er. Umferð vélknúinna ökutækja er bönnuð milli kl. 23:00 og 07:00. Vinsamlega virðum næturró, sýnum tillitssemi og berum umhyggju fyrir þörfum annarra á tjaldsvæðinu.

Um leið og við óskum þess að gestir okkar eigi hér ánægjulega dvöl biðjum við þá að virða almennar reglur tjaldsvæða og ganga vel um. Vinsamlegast látið vita ef einhverju er ábótavant á svæðinu.Vinsamlegast gerið vart við ykkur í afgreiðslu sundlaugarinnar og greiðið aðgang.

Sími í íþróttamiðstöð er 466-3233, nettfang er sundlaug@dalvik.is .

Í Dalvíkurbyggð eru tvö önnur tjaldsvæði á vegum sveitarfélagsins, í Árskógi og við Húsabakka. Þau eru mikið notuð í tengslum við ættarmót um helgar á sumrin og þess vegna minna opin almennri umferð af götunni um helgar heldur en tjaldsvæðið á Dalvík.

Umsjón með tjaldsvæði í Árskógi hefur Kristján Sigurðsson, netfang hans er krsig@ismennt.is .
Umsjón með tjaldsvæði við Húsabakka hefur Eiríkur Helgason, hann er með farsíma 863 – 5051.

Tjaldsvæðin eru að öllu jöfnu opin frá 1. júní til 31. ágúst ár hvert.

Gjaldskrá tjaldsvæðanna í Dalvíkurbyggð er eins á öllum stöðum:
Dvöl fyrir hverja einingu, húsbíl, fellihýsi osfrv. kostar 1.500 kr. á nótt í fyrstu tvær næturnar, síðan 750 kr. þá þriðju og síðan er frítt.
Gjald fyrir tjöld er 1000 kr. pr. nótt fyrstu tvær næturnar, síðan 500 kr. og eftir það frítt.
Leiga á rafmagni kostar 600 kr. pr. nótt á einingu.

Veitingar

Við höfnina, Tel. 466 2040
dallas@dallas.is , www.dallas.is 
 
Á veitingastanum Við höfnina er hægt að fá heitan mat í hádeginu alla virka daga, en það er Veisluþjónustan Hafnarbraut 5 sem rekur staðinn. Þar er einnig mikið líf um helgar. 

Eigandi veisluþjónustunar er Gústaf Adolf Þórarinsson sem er menntaður matreiðslumeistari og grunnskólakennari. Þar að auki eru 4-5 starfsmenn í Veisluþjónustinni.
Starfsmannastefna Veisluþjónustunar er að ráða og halda í gott starfsfólk sem hefur ríka þjónustulund og metnað til að gera gott betra. Veisluþjónustan vill gefa starfsfólki kost á að þróast innan fyrirtækisins og allar breytingar kalla á jákvæðara starfsfólk og allir leggjast á eitt um að vinna að sífelldum endurbótum.
Reynsla Gústafs sem matreiðslumeistara spannar 25 ár. Veisluþjónustan kemur til með að þjóna íbúum Dalvíkurbyggðar með smáar og stórar veislur sem og mannfagnaði

Kaffihúsið Bergi menningarhúsi, Tel. 460 4000
s.inga@simnet.is  Erum líka á facebook

Kaffidrykkir, kökur og léttir réttir.

Opið alla virka daga frá kl. 12:00-18:00
Opið um helgar frá kl. 14:00-17:00

Olís á Dalvík, Tel. 466 1832
dalvik@olis.is

Opið alla virka daga í sumar frá 08:00 – 23:00
Opið um helgar í sumar frá 09:00 – 23:00


N1 á Dalvík, Tel. 466 1236


Tomman heimsendingarþjónusta á Pizzum, Dalvík / pizza delivery. Tel. 466 1559

Opnunartími:
Sunnudaga – fimmtudaga opið frá 18:00 – 22:00
Föstudaga og laugardaga opið frá 18:00 – 23:30


Ekta réttir á Hauganesi, Tel. 466 1016
ekta@ektafiskur.is  www.ektafiskur.is 
 
Ekta Réttir ehf eru að meirihluta í eigu fjölskyldufyrirtækisins Ekta fisks ehf, ásamt góðum fjölskylduvini okkar og athafnamanni, Sveini Jónssyni frá Kálfskinni. Haustið 2006 keyptum við húsnæði við hliðina á Ekta fisks húsinu okkar og settum upp eldhús af fullkomnustu gerð.

Í upphafi árs 2007 réðum við til okkar listakokk að nafni Jón Vídalín sem býr yfir mikilli reynslu í matreiðslu og veitingarekstri og hefur alveg sérstakan áhuga á fiskréttum. Hann er yfirkokkur og framleiðslustjóri Ekta rétta ehf. Jón er einnig margreyndur í veisluþjónustu og mun hann taka að sér slíkar veislur frá eldhúsi Ekta rétta með áherslu á fjölbreytta fiskrétti.

Inngangur - Íris Ólöf Sigurjónsdóttir safnstjóri Hvols opnar samkomuna
Sögulegt umhverfi, Svarfdælskur mars og eðli mannsins - Hjörleifur Stefánsson arkitekt
Innlegg frá gestum sem þekkja til sögu húsanna

Fundarstjóri verður Svanfriður I Jónasdóttir.
Kór Dalvíkurkirkju flytur nokkur lög í upphafi. Þeir sem þekkja til byggingarsögu Dalvíkur eru hvattir til að mæta.

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Sorphirða
  • Fundargátt
  • Íbúðir til sölu
  • Mín Dalvíkurbyggð
  • Hús vikunnar
  • Sumarstörf

Viðburðadagatal

« maí 2013 »
m þ m f f l s
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31