Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

Náttúran

Stóllinn/fjall
Stóllinn að vorlagi
Mynd: Hjörleifur Hjartarson.
Dalvíkurbyggð er á Tröllaskaganum, einu mikilfenglegasta fjalllendi Íslands. Svarfaðardalurinn er umkringdur háum sviphreinum fjallahring og greinist dalurinn af tignarlegu fleygmynduðu fjalli, Stólnum. Austan Stólsins liggur Skíðadalurinn og vestan heldur Svarfaðardalurinn áfram. Fram Svarfaðardalinn lá eitt sinn alfaraleið yfir til Skagafjarðar um Heljardalsheiði en einnig má þar finna aðrar fjölmargar skemmtilegar og krefjandi gönguleiðir fyrir alla aldurshópa.
Jöklar síðustu jökulskeiða hafa sett mark sitt á landslag í Svarfaðardal og kemur það glöggt fram í hinum mikla fjölda afdala og skála sem hvarvetna getur að líta í fjallhlíðunum.


Krækiberjalyng
Krækiberjalyng við Lokugarnir
Krækiberjalyng við Lokugarnir Dalvíkurbyggð er jafnframt áhugavert svæði í náttúrfarslegu tilliti. Svarfaðardalurinn er mjög vel gróinn og samfelld gróðurbreiða teygir sig allt frá dalbotninum upp með fjallshlíðum. Dalbotninn er þakinn starartegundum en ofar eru ýmis grös og þurrlendissef. Fjalldrapi og lyngtegundir eru áberandi í þurrum móum og í hlíðunum er aðalbláberjalyng ráðandi enda dalurinn einstakt berjaland. 

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Annáll 2009
  • Sorphirða
  • Nágrannavarsla

Viðburðadagatal

« september 2010 »
m þ m f f l s
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30