Ertu að flytja í Dalvíkurbyggð?
Ráðhús
Opnunartími: mánudaga – föstudaga kl. 10:00-15:00
Sími: 460 4900 Fax: 460-4901 Netfang: dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is
Í Ráðhúsi er sameiginleg símsvörun fyrir fjármála- og stjórnsýslusvið, fræðslu- og menningarsvið, félagsmálasvið og umhverfis- og tæknisvið. Þjónustuver Dalvíkurbyggðar veitir allar almennar upplýsingar um þjónustu og starfsemi bæjarins. Þar er einnig hægt að tilkynna breytingar á búsetu, nálgast öll eyðublöð, ganga frá umsóknum og fl. Allar þessar upplýsingar er einnig að finna á heimasíðunni www.dalvikurbyggd.is
Upplýsingar um stofanir og þjónustu í sveitarfélaginu er einnig að finna á www.dalvik.is/Stofnanir-og-thjonusta/
Flutningstilkynning
Tilkynna skal um flutninga í afgreiðslu Ráðhúss Dalvíkurbyggðar, í þjónustuveri á 1. hæð strax eftir flutning. Upplýsingum er komið til Hagstofu Íslands, íbúaskrár. Íbúum er einnig bent á þann möguleika að fylla inn rafrænar tilkynningar en það er hægt að gera á vefjunum www.skra.is og www.island.is
Ætlar þú að byggja?
Umhverfis- og tæknisvið veitir allar upplýsingar um lóðir og framkvæmdir.
Opnunartími: Mánudaga til föstudaga frá 08:00-16:00
Sími: 460 4900 Fax: 460 4901
Húsnæði og heimili
Viltu kaupa húsnæði í Dalvíkurbyggð? Ýmsar fasteignasölur á Akureyri og víðar selja húsnæði í Dalvíkurbyggð.
Hiti og rafmagn
Rarik sér um orkudreifingu í Dalvíkurbyggð.
Hitaveita Dalvíkur annast öflun, dreifingu og sölu á heitu vatni til íbúa.
Sími
Þú getur flutt gamla númerið með þér hvert á land sem er. Hins vegar þurfa þeir sem eru í fyrsta skipti að sækja um nýtt símanúmer að sækja um hjá viðeigandi símafyrirtæki.
Börn og unglingar
Leikskólar
Umsókn í leikskóla Dalvíkurbyggðar
Grunnskóli
Grunnskóli Dalvíkurbyggðar hefur um það bil 300 nemendur og 65 starfsmenn.
Starfsstöðvar:
Dalvík, sími 460 4980, ritari@dalvikkurskoli.is, 1.-10. bekkur
Árskógur, sími 460 4970, ritari@dalvikurskoli.is, 1.-8. bekkur
Sími. 460 4930, dalbok@dalvikurbyggd.is,
Mikið úrval bóka, blaða, tímarita, geisladiska, myndbanda og fleira.
Ráðhúsi Dalvíkur - gengið inn frá Bergi menningarhúsi
Sími: 460 4935, dalskal@dalvikurbyggd.is
Íþrótta- og tómstundastarf
Í Dalvíkurbyggð er rekið mjög fjölbreytt og þróttmikið íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf, hvort heldur sem er í íþróttamannvirkjum, félagsmiðstöð og grunnskólum sveitarfélagsins eða í hinum fjölmörguíþrótta- og tómstundafélögum.













