Lífsleikni
Til þess að nám nemenda verði farsælt þarf börnum að líða vel í skólanum. Við teljum því afar mikilvægt að leggja áherslu á nauðsyn lífsleiknikennslu.
Í Aðalnámskrá kemur fram að með lífsleiknikennslu er ætlunin að efla alhliða þroska nemenda, félagslegan þroska, siðvit, og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.
Í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar vinnum við með hvert lífsleikniþema í einn eða tvo mánuði.
Þessi þemavinna er einn þáttur í lífsleiknikennslu Grunnskóla Dalvíkurbygggðar.
Með því að kenna börnum dyggðir er þeim innrætt góðvild, hjálpsemi og að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.
Markmið:
Efla sjálfstraust og sjálfsaga
Bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
Búa nemendur undir að takast á við lífið
Bæta velferð og líðan nemenda
Efla félagsleg samskipti og tengsl nemenda og heimila
Framkvæmd.
Skólastjórnendur senda frá sér fréttabréf um þemað sem fer á heimasíðu skólans, heim til allra nemenda og er hengt upp í skólanum.
Með bréfinu fá kennarar hugmyndalista um ýmislegt er varðar vinnu með nemendum.
Á bekkjarfundum fara fram umræður um viðkomandi þema.
Kennarar senda nemendur með heimavinnu varðandi þemað sem foreldrar taka þátt í.
Opnunartími skrifstofu:
Mán - Fim 07:40 - 15:00
Fös 07:40 - 14:00