Fréttir

25.07.2006

Kveðið á Hvoli

Það var gaman á Hvoli um helgina. Í yndislegu veðri á sunnudaginn kom hann Þórarinn Hjartarson frá Tjörn og kvað rímur og fór með stemmur. Mætingin var í nokkru samræmi við veðrið en þeir sem mættu báru mikið lof á frammistöðu Þórarins.

Þórarinn Hjartarson

 

Sunnudaginn 15. júlí komu Beate Stormo eldsmiður og Helgi Þórsson langspilsleikari og smíðuðu og léku fyrir gesti og gangandi.  Myndir af þeim má finna hér.

 

Næstu helgi, á sunnudaginn, verður svo Leikfélag Dalvíkur á safninu. Farið verður í leiki auk þess sem þau verða með ýmsar skemmtilegar uppákomur.

Við hvetjum alla til að kíkja við og hlökkum til að sjá ykkur sem flest á Hvoli.

 

Til baka

Forsíða vefsins Prenta þessa síðu Veftré Stór leturstærð Venjuleg leturstærð

Byggðasafnið Hvoll á Dalvík
Hvoli við Karlsrauðatorg
620 Dalvík
Sími: 466-1497 / 892-1497
netfang: hvoll@dalvik.is

Sumartími: Opið alla daga
1. júní - 1.september Kl. 11:00 - 18:00

Vetrartími: Opið laugardaga
Kl. 14:00 - 17:00