Fréttir
19.08.2010
Leiðsögn um eyðibýlin á Árskógsströnd
Byggðasafnið Hvoll stendur fyrir leiðsögn um eyðibýlin á Árskógsströnd sunnudaginn 22. ágúst. Brottför frá Byggðasafninu Hvoli kl. 13:00.
11.08.2010
Syngjum saman á Hvoli
Þann 15. ágúst klukkan 13.00 ætla þau Bára Grímsdóttir og Chris Foster að flytja fyrir okkur sönglög og kveða rímur. Mætum öll og syngjum með. Heitt kaffi á könnunni alla helgina
27.07.2010
Verslunarmannahelgin á byggðasafni
22.07.2010
Sumarfréttir frá Byggðasafninu Hvoli á Dalvík
13.07.2010
Leiðsögn um hernámsminjar á Dalvík
Á sunnudaginn 18. júlí klukkan 13:00 verður farið með leiðsögn um hernámsminjar á Dalvík. Endilega látið sem flest sjá ykkur. Kaffi á könnunni
07.07.2010
Íslenski safnadagurinn
Sunnudaginn 11. júlí verður Íslenski safnadagurinn. Og í tilefni af því verður skemmtileg dagskrá á safninu. Hinn svarfdælsk ættaði Tómas R. Einarsson, bassaleikari
þenur hljóðfærið. Og kaffi verður á könnunni
29.06.2010
Fréttir af byggðasafninu
Þann 4 júlí verður boðið upp á heimabakaðar kleinur og kaffi á byggðasafninu.
18.06.2010
Sumarið komið á Byggðasafninu
Sumardagskráin á Byggðasafninu Hvoli er hafin. Hérna er hægt að sjá dagskrá sumarsins. http://www.dalvik.is/resources/Files/PDF/Hvoll-sumardagskra.pdf Núna um helgina sunnudaginn 20 júní verður boðið upp á Leiðsögn um Dalvík norðan Brimnesár kl 13:00 frá Byggðasafninu. Opnunartími er alla daga frá kl 11:00-18:00
27.01.2010
Vetrarstarf á Byggðasafni
19.08.2009
Söngstund á byggðasafninu Hvoli á laugardag kl. 14.00
Næstkomandi laugardag 22. ágúst verður söngstund á byggðasafninu Hvoli kl. 14.00. Hjörleifur Hjartarson og Íris Ólöf Sigurjónsdóttir syngja nokkur lög saman og síðan verður almennur söngur með safngestum. Söngurinn lengir lífið...
22.07.2009
Tónleikar sunnudaginn 26. júlí
Tónleikar í Dalvíkurkirkju sunnudaginn 26. júlí Sunnudaginn 26. júlí mun Svissneski söngflokkurinn Vocembalo ásamt Þórarin Eldjárn flytja í tali, tónum og myndum sögurnar um Max og Móritz. Fluttir verða kaflar úr katöntunni Max og Móritz eftir tónskáldið Christoph Kobelt en hún byggir á texta skopmyndasögunnar Max og Móritz eftir Wilhelm Busch. B
08.06.2009
Opnun sýningar tókst vel
Formleg opnun byggðasafnsins tókst vel á sjómannadag Opnun byggðasafnsins tókst vel upp og komu hátt í 70 manns við á sjómannadaginn. Tvær sýninga voru opnaðar í leiðinni, annars vegar handavinnusýning og hins vegar svokölluð snertisýning þar sem snerta mátti og fikta í munum og tækjum sem útbúin voru sérstaklega. Um hádegisbil voru hal
04.06.2009
Opnun sýningar sjómannadaginn 7. júní
Á sjómannadaginn þann 7. júní opna tvær nýjar sýningar á Byggðasafninu Hvoli á Dalvík Sýnishorn handavinnu stúlkna í Dalvíkurbyggð á árunum 1950 - 1970 Hin sýningin er einstök að því leiti að gamlir gripir á nýtt hlutverk og það má snerta þá gripi. Börn og fullorðnir eru beinlínis hvattir til að snerta og rannsaka virkni gripanna. Þessir gömlu gr
21.10.2008
Vetrarstarf á byggðasafni
16.10.2008
Til íbúa Dalvíkurbyggðar
Þessa dagana og vikurnar eru margir uggandi. Bæði einstaklingar og fyrirtæki hafa þegar orðið fyrir höggi vegna þeirra hamfara sem nú eiga sér stað á fjármálasviðinu; enn er eftir að vinna úr mörgum þáttum og því eðlilegt að fólk hafi áhyggjur af fjárhag sínum og atvinnu. Við höfum líka orðið þess vör að íbúar hafi áhyggjur af fjárhagsstöðu sveit
04.06.2008
Bernd Ogrodnik og Einar Áskell
Bernd Ogrodnik verður með brúðuleiksýninguna Einar Áskell á Byggðasafninu Hvoli klukkan 14:00 laugardaginn 7. júní.
14.04.2008
Íslensku safnaverðlaunin
Safnverðlaun 2008
Hin íslensku safnverðlaun 2008
Félag íslenskra safna og safnmanna og Íslandsdeild ICOM (Alþjóðaráð safna) standa saman að íslensku safnverðlaununum sem veitt eru annað hvert ár safni sem með starfsemi sinni þykir skara fra
26.02.2008
Vetrarstarf
Það er margt að gera á safni yfir vetrartímann. Nú sem stendur er verið að leggja lokahönd á vinnu við rafrænan miðil sem tekinn verður í notkun á vordögum. Samstarf við önnur söfn við Eyjafjörð museums.is, sofn.is,er í m
03.07.2007
Hver var Jóhann Svarfdælingur?
Íslenski safnadagurinn er á sunnudaginn 8. júlí. Öll söfn á landinu bjóða gesti sína velkomna og það er enginn aðgangseyrir þennan dag. Í boði verður hins vegar að hlýða á Óskar Þór Halldórsson fjalla
27.06.2007
Rósaleppaprjón
Sunnudaginn 1.júlí mun Þuríður Sigurðardóttir kynna rósaleppaprjón á Byggðasafninu Hvoli. Hægt er að nota þessa gömlu íslensku tækni á margvíslegan hátt. Á safninu er nú yfirstandandi sýning á munum
19.06.2007
Kristján Eldjárn
Erindi á Byggðasafninu Hvoli nk. sunnudag Kristján Eldjárn á Grænlandi 1937 Næstkomandi sunnudag 24. júní kl. 14 heldur Þórarinn Eldjárn tölu í Byggðasafninu Hvoli um Grænlandsför föður síns, Kristjáns Eldjá
11.06.2007
Pétur og úlfurinn á Hvoli
Pétur og úlfurinn vöktu mikla lukku á byggðasafninu. Sýningin er mjög falleg og sértaklega vel unnin. bern fer á kostum með brúðunum sínum. Um 100 manns gerðu sér fer'ð á safnið til að sjá brúðurnar han Bernds.
Sunnudagurinn næsti er 17. júní. Þá verður boðið upp á kaffi og kleinur á safninu.
05.06.2007
Brúðuleikhús á Byggðasafninu Hvoli
Á sunnudaginn 10. júní kl. 14.00 mun Bernd Ogrodnik sýna brúðuleikinn Pétur og úlfurinn á byggðasafninu Hvoli. Sýningin hefur fengið mikið lof gagnrýnenda og er sérstaklega skemmtileg fyrir fjölskylduna að sjá saman.
Velkomin
05.06.2007
Rósaleppar í allri sinni dýrð
Á sjómannadaginn opnaði safnið með sýningunni Rósaleppar í allri sinni dýrð. Einng var kennt að beita í bjóð og sýndar tóstungur.
Helene Magnússon hefur um árabil kynnt sér tækni í gerð rósaleppa og afraksturinn varð bók með kennsluaðferðum og uppskriftum. Hér á safninu eru nú sýnd brot af því sem má útbúa með þessari gömlu tæk
07.05.2007
Eyfirski safnadagurinn á Hvoli
Gestir á safnadeginum
Eyfirski safnadagurinn var haldinn á laugardaginn og sóttu alls 90 manns Byggðasafnið Hvol heim á laugardaginn. Boðið var upp á safnarútur um Eyjafjörðinn og fóru tvær rútur frá Akureyri um vestaverðan fjörðinn og komu við á Byggðasafninu Hvoli, Náttúrugripasafninu á Ólafsfirði og Síldarminjasafninu á Siglu
02.05.2007
Byggðasafnið Hvoll á eyfirska safnadaginn!
Eyfirski safnadagurinn verður laugardaginn 5. maí og í því tilefni verða opnaðar sameiginlegar heimasíður safna við Eyjafjörð, www.museums.is og www.sofn.is
Á Byggðasafninu Hvoli verða lesin ljóð og sagðar sögur. Höfundar eru allir úr byggðalaginu en hafa flestir látið lítið fyrir sér fara á ritþingum til þessa. Dagskráin hefst kl.14.10
02.05.2007
Eyfirski safnadagurinn 5. maí
Vertu gestur í heimabyggð á eyfirskum safnadegi!
Söfnin í Eyjafirði opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi laugardaginn 5.maí. Tilefnið er eyfirski safnadagurinn en markmiðið með deginum er að vekjaathygli á þeirri fjölbreyttu og áhugaverðu safnaflóru sem Eyjafjörður hefurupp á að bjóða. Söfnin munu þennan dag kynna starf
10.04.2007
Byggðasafnið Hvoll um páskana
Um 100 gestir komu á byggðasafnið um páskana. Safnið var opið þrjá tíma á dag í þrjá daga. Heimamenn voru í meirihluta og er það ánægjulegt. Vegna snjóleysis var meiri ástæða til að heimsækja safnið. Fólk gaf sér góðan tíma að skoða fjölbreyttar sýningar safnsins og það var boðið upp á kaffi.
03.04.2007
Fréttir af byggðasafni
Í vetur hefur safnið verið lokað virka daga. Safnið er opið alla laugardaga frá 14.00 - 17.00. Eins og áður er hægt að ná samkomulagi við forstöðumann um að fá að skoða safnið utan hefðbundins opnunartíma.
Safnkennari kemur frá Minjasafninu á Akureyri og er með sérstaka dagskrá. Annarsvegar fjallar hann um hreinlæti fyrr á tímum
15.08.2006
Ungir tónlistamenn á byggðasafninu
Fiskidagshelgin er nú liðin og var aðsókn með miklum ágætum. Tæplega 200 manns komu við á Fiskidaginn sjálfan og voru allir með góða skapið með sér enda hátíðisdagur mikill.
Á sunnudag voru síðan tónleikar með ungu tónlistarfólki af norðurlandinu. Ragnheiður Jónsdóttir víóluleikari úr Svarfaðardal og Ólafur Haukur Árnason gítar
08.08.2006
Góð aðsókn
Góð aðsókn var á Hvoli um verslunarmannahelgina en rúmlega 200 manns kíktu við. Þar af voru 130 sem kíktu í kaffi og kleinur á sunnudaginn.
Næstu helgi heldur sumardagskráin áfram. Sunnudaginn 13. ágúst munu Ragnheiður Jónsdóttir lágfiðluleikari og Ólafur Haukur Árnason gítarleikari flytja íslensk lög sem útsett hafa verin af Einari
01.08.2006
Bakkabræður á Hvoli
Bakkabræður komu á Hvol í boði Leikfélags Dalvíkur um helgina. Bryddað var upp á ýmsu skemmtilegu, lesin ljóð og farið með sögur af þeim Bakkabræðrum sem þeir léku með. Eftir lesturinn skelltu þeir sér út með börnunum og fóru í leiki. Myndir frá heimsókn þeirra bræðra má finna hér.
Aðsókn í júlí var með ágætum og mikil ánægja hefur verið
25.07.2006
Kveðið á Hvoli
Það var gaman á Hvoli um helgina. Í yndislegu veðri á sunnudaginn kom hann Þórarinn Hjartarson frá Tjörn og kvað rímur og fór með stemmur. Mætingin var í nokkru samræmi við veðrið en þeir sem mættu báru mikið lof á frammistöðu Þórarins.
Sunnudaginn 15. júlí komu Beate Stormo eldsmiður og Helgi Þórsson langspilsleikari og smíðuðu o
11.07.2006
Íslenski safnadagurinn á Hvoli
Margt var um manninn á Byggðasafninu Hvoli á íslenska safnadaginn. Þórarinn Hjartarson og Þuríður Vilhjálmsdóttir fluttu þjóðlega sönglagadagskrá og mæðginin María Jónsdóttir og Jón Ólafs-
son fluttu stemmur.
Sunnudaginn 16. júlí kl 13.00 - 17.00 kemur eldsmiðurinn Beate Stormo ásamt eiginmanni sínum Helga Þórssyni á safnið. Beate mun lemj
04.07.2006
Gömul hús á Dalvík
Sveinbjörn Steingrímsson fór með gesti safnsins í söguferð sunnudaginn 2. júlí. Byrjað var á að kynna húsin í næsta nágrenni við byggðasafnið Hvol þ.e í kring um Lágina, síðan var stefnan tekin suður Hafnarbrautina. Farið var í sögu rafmagnsins og Sveinbjörn sagði frá Rjómabúinu og læknum sem var kallaður Rjómabúslækurinn seinna Stöðvarlækur.
26.06.2006
Handverksdagur á Hvoli
Laugardaginn 24. júní var handverksdagur á Hvoli. Þar var samankomið handverksfólk úr byggðalaginu sem sýndi listir sínar. Þarna mátti skoða falleg þæfð sjöl, útsaum margskonar, skógerð, perluprjón tóstungur, gler og fleira. Það var margt um manninn og gestir þáðu kaffi og kleinur.
19.06.2006
17. júní 2006
Um helgina komu þó nokkrir gestir á safnið. Boðið var upp á kaffi og kleinur og voru gestir ánægðir ánægðir. Sérstaklega fannst nokkrum jarðskjálftasýningin athyglisverð.
Laugardaginn 24. júní munum nokkrir handverksmenn sýna listir sýnar. Íbúar byggðalagsins eru hvattir til að mæta og kynna sér hvað handverk samferðamanna sinna.
15.06.2006
Sjómannadagur á Byggðasafni
Fáir heimsóttu byggðasafnið Hvol á sjómannadag. Félagar úr Karlakór Dalvíkur sungu sjómannalög. Vonandi koma gestir á 17. júní þá er boðið upp á kaffi og kleinur. Gestir sem að koma í þjóðbúningum fá frítt inn. Á safninu er skemmtileg sýning á þjóðbúningadúkkum sem vert er að skoða.
08.06.2006
Opnun Byggðasafnsins
Nú er búið að opna byggðasafnið fyrir sumarið. Vert er að skoða litla sýningu í risi um þjóðbúningadúkkur. Þarna eru samankomanar dúkkur frá ýmsum þjóðlöndum í fallegu búningunum sínum. Á opnun söng barnakór Dalvíkurskóla . Margrét Hallgrímsdóttir Þjóðminjavörður sagði nokkur orð og Íris Ólöf Sigurjónsdóttir bauð gesti velkomna.
Bakkabræður þvæl
01.06.2006
Opnun heimasíðu
Fimmtudaginn 1. júní opnar ný heimasíða byggðasafnsins. Síðan er ekki komin í endanlegt horf og mun á næstu mánuðum vaxa og dafna.
Laugardaginn 3. júní kl. 13.00 opnar safnið fyrir sumarið. Nokkrar konur úr byggðalaginu hafa safnað þjóðbúningadúkkum og mun vera hægt að skoða margar þeirra á nýrri smásýningu í risi. Á opnunardag mun barnakór Dalv




